Vinir að eilífu 10. mars 2007 07:00 Báðir hrifnir af Bó. Daníel Ágúst og Krummi eru sammála um að Björgvin Halldórsson sé snillingur en eru á öndverðum meiði hvað hvalveiðar Íslendinga varðar.
Daníel Ágúst kemur til dyranna klæddur eins og náfrændi Drakúla, þessi sem fluttist til Oklahoma. Þráðbeinn í baki, í svörtum lygilegum jakkafötum, opnar hann dyrnar fyrir blaðamanni og vísar honum inn í slotið. Krummi er hins vegar, eftir sem áður, alsettur tattúveruðum myndum en það er samt eitthvað breytt. Þykk hlý peysa og mýkra yfirbragð svo manni áður brá. Hann segist líka vera hættur í rokkstjörnuleik. „Já, ég er hættur í því. Það var ákveðið skeið sem ég tók út. Maður var að viðhalda vissri ímynd uppi á sviði sem skemmtikraftur og listamaður. Stundum tók maður eitthvað af þeirri ímynd með sér þegar maður steig af sviðinu til að sannfæra fólk um að maður væri sá sem maður sýndi á sviðinu og það gekk kannski stundum of langt." Daníel: „En hann þarf ekkert á þeirri ímynd að halda í dag, hann er búinn að fara í gegnum það þroskastig. Krummi: „Í dag er ég hamingjusöm manneskja og tónlistariðkandi." Þið tveir saman í kántríbandi kom nokkrum svolítið á óvart, af hverju náið þið svona vel saman? Krummi: „Við erum nú ekki beinlínis kántrísveit, þetta er mun meira rokk. Við erum undir áhrifum frá blústónlist, suðurríkjarokki og sixtísrokki, góðum lögum og jú, kántrí. Við stefnum að því að taka upp efnið á þessu ári en annars er þetta í höndum örlaganna. Daníel: Já og okkar eigin höndum. Ég var þrjú ár í sveit á Syðra-Holti í Svarfaðardal. Það hefur örugglega einhver áhrif. En okkur lyndir ótrúlega vel saman." Krummi: „Við erum nú eiginlega bara bestu vinir." Daníel: „Já, höfum verið það síðan í október á síðasta ári. Krummi: „Samt höfum við alltaf þekkst aðeins en þessi djúpa vinátta byrjaði að myndast þegar við fórum að gera tónlistina saman. Svo erum við auðvitað mjög líkir í útliti og báðir í meyjarmerkinu; meyjur með fullkomnunaráráttu og hreingerningaræði. Daníel er samt mun meiri meyja en ég. En óreiðan mín er þó mjög skipulögð. En við Daníel erum förunautar og ég veit að við verðum vinir allt okkar líf. Þangað til að við liggjum á dánarbeðinu með lag í hausnum."Nýdönsk með stælaÁttu einhverjar plötur með Nýdanskri Krummi og hefur þú Daníel sungið með Björgvini Halldórssyni, áttu jafnvel eitthvað eftirlætislag með honum? Krummi: „Já, ég á hérna ..." Daníel: Ekki ljúga að henni. Krummi: „Nei, hvað, ég á eina plötu." Daníel: „Hvaða þá, Himnasendingu eða Delux?" Krummi: „Himnasendingu. Ég man þegar ég var niðri í bæ á 17. júní að horfa á Nýdönsk á ímyndunarfylleríi." Daníel segir að það geti vel passað að þeir í Nýdanskri hafi verið á ímyndunarfyllerí því hann hafi aldrei drukkið meðan hann var í hljómsveitinni, hafi aldrei gert neina vitleysu. „Ólifnaðurinn" hafi fyrst hafist eftir að hann hætti í rokkhljómsveit. Svo fyllir hann stórt bjórglas af grænu tei handa blaðamanni. Krummi: „Já, þú varst með einhverja stæla. En Nýdönsk í þá daga var að semja mjög góð lög og ég fílaði textana. Þeir voru hvorki erfiðir né heimskulegir." Daníel: „Já, þegar músíkin flæðir um mig verð ég mjög óheflaður. Hægt er að túlka það sem einhverja fötlun, spastísku eða að ég sé undir áhrifum einhverra ofskynjunarlyfja. En ég hef ekki enn orðið þess heiðurs aðnjótandi að syngja með Björgvini. Jú, jú, ég vil endilega prófa það. Hvað varðar uppáhaldslög ..." Krummi hefur upp raust sína: „Ég er að tala um þig ..." Daníel: „Já, það er ótrúlega gott lag - Skýið." Krummi: „Og Vetrarsól." Daníel: „Björgvin á Vísnaplötunni er snilld. Þar er röddin hans svo tær og hann, hann svo ungur, það er ótrúlega fagurt." Daníel tekur við söngnum af Krumma: „Út um græna grundu, gakktu hjörðin mín, yndi vorsins undi, ég skal, ég skal, ég skal gæta þín. Björgvin er frábær söngvari." Krummi: „Já, og snillingur." Daníel: „Maður hefur alltaf horft upp til hans." Ósammála um hvalveiðarHeitið á nýjustu afurð Mínuss, The Great Northern Whale Kill, er samkvæmt slúðri bæjarins skot á hljómsveitina Nylon og Einar Bárðarson sem kveinkaði sér undan þeim áhrifum sem hvalveiðar Íslendinga hefðu á gengi bandsins ytra. Er eitthvað til í þeim sögum og eruð þið með eða á móti hvalveiðum? Daníel: „Skemmtilegt slúður." Krummi: „Já, mjög gott en nei. Titillinn á fyrst og fremst að vekja fólk til umhugsunar. Ég er á móti hvalveiðum þó ég ætli ekki að tjá mig fyrir allt bandið."Daníel: „Þú ert svo mikill dýravinur." Krummi: „Já, ég er það. Við höfum alltaf notað nöfn persóna í titla okkar en í þetta skiptið ákváðum við að gera það ekki, þessi titill flæðir svo vel. Við erum frá Íslandi og þessi titill mun vekja eftirtekt, fólk mun hugsa hvað sé í gangi. Hvalveiðar hafa eflaust áhrif á ímynd landsins og heimurinn sættir sig ekki við þetta." Daníel: „Ég held að við ættum bara að láta hvalveiðiráðið ákveða hvort við veiðum hvali eða ekki. Þetta er hápólitískt mál sem við höfum ekki hundsvit á, maður er ekki sérfræðingur í fiskimiðum né hvalveiðum og mér finnst því að það sé ekkert vit í því að vera að tjá sig um þetta." Krummi: „Já, en hverjir kaupa þetta hvalkjöt?" Daníel: „Nú, Japanar." Krummi: „Já, en þeir veiða sjálfir hvali." Daníel: „Það er til fullt af fólki sem borðar hvalkjöt." Krummi: „Það er ekki einu sinni víst að það sé markaður fyrir þetta í dag. Þeir byrjuðu án þess að finna út úr því. Daníel: „Nei, en þá verður bara að finna út úr því. Það er ekki eins og dauðir hvalir séu búnir að mynda eitthvað hvalfjall.Krummi verslar í KrónunniEn hvað finnst ykkur um auðmenn og Elton John í auðmannaveislum? Hvernig svara tónlistarmenn slíkum spurningum? Daníel: „Ég bíð bara eftir boðskorti í partí til Eltons. Við Krummi myndum mæta saman og Elton myndi segja; „Strákar, á ég ekki að spila fyrir ykkur lag, hvaða lag langar ykkur að heyra? Fyrst myndum við láta hann spila Your song." Krummi: „Þar næst Tiny dancer." Daníel: „Svo myndum við segja: Elton - áttu einhvern pening?" Krummi: „Svo myndum við taka eitt lag fyrir hann, órafmagnaða útgáfu. Það er það sem okkur finnst um Elton John." Daníel: „Já, og Your song með Elton John kemur mér til að gráta. Lagið Happy, happy talk hefur þveröfug áhrif." Krummi: „Tilhugsunin um að missa þá sem ég elska gerir það sama við mig. Og Brothers in Arms með Dire Straits." Daníel: „En auðmenn Íslands eru nauðsynlegir. Ég sé ekki afhverju manni ætti að vera í nöp við einhvern sem hefur grætt pening. Maður óskar þess bara að þeim líði vel í hjartanu með aurana sína og geri eitthvað sniðugt og skemmtilegt við peningana sem frúin í Hamborg gaf þeim en eyði þeim ekki í vitleysu." Fyrst auðmenn trufla ykkur ekki, hvað segið þið þá um verðlagið. Nú er Reykjavík sjöunda dýrasta borg í heimi. Eruð þið neytendur og böggar dýrtíðin ykkur? Daníel: „Ég kaupi yfirleitt í matinn hér úti í Krambúð á Skólavörðustíg. Það er margfalt dýrara en í Bónus þannig að ég er ekki mjög meðvitaður um verðlagið. Ég er hins vegar mjög meðvitaður um það hvað mér finnst gott að búa hérna, þetta er öruggt samfélag." Krummi: „Ég reyni alltaf að versla þar sem er ódýrast. Nauðsynjar eru allt of dýrar. Bara brauð, mjólk og ostur. Ég furða mig stundum á því hvað ostur er dýr. Pínulítið stykki á þúsundkall! Virðisaukinn var nú reyndar að lækka og vonandi skilar það sé til neytenda. Ég finn smá mun á strimlinum í Krónunni allavega. Verst að það talar enginn ensku þar." Daníel: „Ha, þykistu vera útlendingur í Krónunni? Kemurðu kannski með sólgleraugu og hatt, tekur upp oststykki og æpir upp yfir þig af hneykslan? (Daníel sýnir leikræn tilþrif og leikur Krumma sem yfir sig hneykslaðan útlending í Krónunni veifandi oststykki): Two thousand kroners! Ridiculous!" Minnislaus DaníelEruð þið ekkert hræddir um að enda sem ellismellir? Spilandi á Players eða Kringlukránni? Daníel: „Eina fyrirmyndin sem ég hef í þeim efnum er Johnny Cash. Mig langar að enda eins og hann - gerandi frábæra tónlist á síðustu árunum. Plöturnar sem hann var að gera þá eru bestu plötur sem hann hefur nokkru sinni gert. Mig langar að feta í þau fótspor." Krummi: „Gamall eða ungur - ef maður er að gera hlutina eftir sinni sannfæringu, af einlægni og er hamingjusamur þá skiptir engu máli hvort maður er á Kringlukránni eða Wembley." Krummi, af hverju ertu með svona mörg tattú og af hverju ert þú ekki með nein Daníel? Krummi: „Af því að ég hef aldrei átt dagbók og líkaminn minn gegnir því því hlutverki. Hvernig ég var þegar ég fékk mér þetta tattú - hvernig mér leið þegar hitt kom - hvað ég var að gera og af hverju. Ég ber minningarnar á öxlinni, hendinni, andlitinu." Daníel: „Það er kannski ástæðan fyrir því að ég man aldrei neitt. Ég ætti kannski að byrja á því að fá mér tattú. Krummi man til dæmis alltaf hvenær hann er fæddur." Krummi: (Réttir hnefann með ártalinu 1979 þar á framan í blaðamann.) „Þannig að þegar ég fæ taugaáfall mun ég að minnsta kosti muna hvenær ég er fæddur." Daníel: „Mér finnst aðallega erfitt að ákveða hvað ég ætti að fá mér og hafa það svo á húðinni án þess að ná því nokkru sinni af. Þú spyrð hvort ég sé þá jarðbundnari en Krummi. Það getur vel verið. Ég get alveg fuðrað upp í galsa og farið á flug." Krummi: „... með hrokafullum athugasemdum." Daníel: „Og svo get ég líka staðið fastur á mínu og verið mjög jarðtengdur." Aldrei heyrt í MagnaEf þið ættuð þá að nota þrjú lýsingarorð til að lýsa hvor öðrum - hver yrðu þau þá? Krummi: „Daníel er klár, gáfaður og góður." Daníel: „Hann er heill og sannur. Frábær tónlistarmaður, skemmtilegur vinur og frábær einstaklingur. Hvað voru þetta mörg lýsingarorð?" Krummi: „Er gáfaður og klár ekki hér um bil það sama?" Daníel: „Gáfur er eitthvað sem þér var gefið og að vera klár er að geta unnið úr því." Rokkarinn Magni kom, sá og sigraði á síðasta ári, mynduð þið einhvern tímann taka þátt í raunveruleikaþætti og hvað finnst ykkur um Magna? Krummi: „Ég myndi aldrei fara í raunveruleikaþátt, mér finnst það fáránlegt. Að keppa í tónlist finnst mér ekki rétti andinn. Ef mig langar að taka þátt í karaoke þá fer ég niður á Ölver og tek eitt lag þar." Daníel: „Ég myndi gera í brækurnar í svona þætti, það er hálfmiskunnarlaust hvernig farið er með þessa krakka. Ég þekki ekki það sem Magni hefur gert. Krummi: Ég þekki manninn ekki neitt og hef ekkert hlustað á það sem hann hefur gert en ég hef heilsað honum." Daníel: „Já, af því að þú ert svo vel upp alinn." Krummi: „Já, ég meina, ég hef ekkert á móti honum og vona bara að honum gangi vel." Er lífsstíll ykkar gamla góða klisjan; Sex, drugs and rock "n"roll? Krummi: „Nei, ég myndi segja að okkar lífsstíll væri lots of sex, art and rock "n" roll." Daníel: „Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara þessu. Ég á yndislega konu og hvort ég neyti eiturlyfja kemur engum við en ég er án efa heilshugar í tónlist."
Mest lesið Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? Lífið Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Lífið „Ertu kannski Íslendingur?“ Lífið Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Lífið Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Myrkur Games birta fyrstu stiklu Echoes of the End Leikjavísir Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Lífið Fleiri fréttir „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Af hverju er hvítasunnan haldin hátíðleg? „Ertu kannski Íslendingur?“ Brúnkukrems- og karókíkvöld á dagskrá kvenfanga Krakkatían: Aldur, tími og Greta Thunberg Söfnuðu milljón krónum fyrir ungt fólk með krabbamein Fékk sér Stöð 2 húðflúr í beinni útsendingu Vann gullverðlaun fyrir sykurblómaskreytingu Vala Kristín og Hilmir Snær búin að eiga Laufey Lín og Barbra Streisand leiða saman hesta sína Stuð og stemning á „árshátíð íslenskra þungarokkara“ í Stykkishólmi Þjóðhátíð um raunveruleikaþátt Brynjars: „Það er ekkert í boði“ Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Hélt við konu besta vinar síns Ríkissáttasemjari selur glæsihús undir dönskum áhrifum Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Mátti eiginlega ekki hósta því þá myndi hann kremja hann Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Sjá meira