Erlent

Sprengjuleit við Hvíta húsið

Vera Einarsdóttir skrifar
Hvíta húsið
Hvíta húsið MYND/365

Fjölmiðlamiðstöð nálægt Hvíta húsinu var rýmd í dag. Það var gert eftir að sprengjuleitarhundur sýndi viðbrögð við bifreið sem verið var að nota í tengslum við heimsókn ísraelska forsætisráðherrans Ehud Olmert til landsins.

Lögreglan í Washington leitaði í bílnum, rýmdi nokkrar viðbyggingar við Hvíta húsið og lokaði götum í nágrenninu. Bush bandaríkjaforseti var inni í aðalbyggingunni og hélt sig við sína dagskrá þrátt fyrir atvikið. Þegar var búið að herða gæslu á svæðinu í tengslum við heimsókn Olmerts.

Byggingin sem rýmd var er ráðstefnusetur við Pennsylvania Avenue en það er tímabundið notað sem fjölmiðlamiðstöð á meðan viðgerðir standa yfir á vestur hluta Hvíta hússins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×