Ný ríkisstjórn Abbas hefur stuðning lykilaðila Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 18. júní 2007 18:49
Ný Neyðarstjórn Mahmoud Abbas forseta Palestínu hefur stuðning lykilaðila í alþjóðasamfélaginu. Bandaríkjastjórn og Evrópusambandið ætla að hefja fjárhagsaðstoð við stjórnvöld í Palestínu á nýjan leik eftir um eins og hálfs árs hlé. Nýja stjórnin var mynduð í gær eftir að meðlimir Hamas náðu völdum á Gaza. Forystumenn Hamas neita að viðurkenna ríkisstjórnina og halda því framað Ismail Haiyeh sé enn réttkjörinn forsætisráðherra Palestínumanna. Neyðarstjórnin hefur fengið góðar viðtökur hjá bæði Ísraelum og Bandaríkjamönnum sem fagna stjórninni og segja hana boða nýtt upphaf friðarumleitana. Javier Solana, sem fer með utanríkismál Evrópusambandsins, tilkynnti í morgun að sambandið hygðist hefja beina aðstoð við bráðabirgðastjórn Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, með fjárframlögum. Evrópusambandið hefur ekki stutt Palestínumenn fjárhagslega frá sigri Hamas í þingkosningum í janúar á síðasta ári. Óljóst er þó hvenær greiðslurnar taka að berast Palestínumönnum. Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tilkynnti svo um eftirmiðdag að bandarísk stjórnvöld ætluðu að gera slíkt hið sama og hefja fjárstuðning við palestínsk stjórnvöld á nýjan leik. Ísraelar lokuðu í morgun fyrir vöruflutninga til Gaza og vilja ísraelsk stjórnvöld með aðgerðum sínum reyna að einangra meðlimi Hamas algjörlega. Fjölmargir íbúar á Gaza hafa reynt að flýja átökin og reynt að komast yfir til Ísraels í gegnum landamærastöð sem skilur að Ísrael og Gaza. Ísraelar hafa hins vegar verið fastir fyrir og neitað flestum um að fara í gegn og sent þá aftur til síns heima.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Trump: Khamenei látinn Erlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Veður Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fleiri fréttir Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Sjá meira