Fjölskylduerjur fræga fólksins 9. júlí 2007 06:30 Britney Spears er ekki hlýtt til móður sinnar þessa dagana og vill ekki hafa hana nálægt sonum sínum tveimur.
Ástalíf Hollywoodstjarnanna einkennist oftar en ekki af miklum sviptivindum. Það eru þó ekki bara ástarsamböndin sem eru brokkgeng í Hollywood, því oftar en ekki einkennir sama kergja sambönd foreldra og barna. Britney bítur frá sérMichael Lohan hefur gerst brotlegur við lögin oftar en Lindsay dóttir hans, sem vill ekkert við föður sinn tala.Britney Spears bættist nýlega í hóp þessa frægðarfólks, þegar hún sagði móður sinni, Lynne Spears, að halda sig fjarri börnum sínum og Kevins Federline. Britney vill meina að móðir hennar sé háð verkjalyfjum og vill ekki sjá hana nálægt drengjunum ef hún er undir áhrifum þeirra.Slúðurpressan hermir að Britney sé fyrst og fremst að hefna sín á móður sinni. Britney segir Lynne, í samráði við umboðsmann sinn og Kevin Federline, hafa neytt sig til að leggjast inn á meðferðarheimilið Promises fyrr á árinu. Söngkonan segist hins vegar aldrei hafa verið háð áfengi eða eiturlyfjum, heldur þjáðst af fæðingarþunglyndi, og hafi þar með ekki átt erindi í meðferð. Lynne segist hafa fulla trú á að deilan leysist von bráðar. Britney segist hins vegar bara biðja fyrir móður sinni.Játningar brotins hjartaJennifer Aniston var ekki sátt við móður sína þegar sú síðarnefnda lét gamminn geisa um barnæsku Aniston í sjónvarpsþætti.Lindsay Lohan hefur átt í lengri útistöðum en svo við föður sinn, Michael. Hann hefur verið tíður gestur á lögreglustöðvum ytra, og losnaði úr fangelsi í mars á þessu ári eftir að hafa afplánað tveggja ára dóm fyrir ölvunarakstur og tilraun til líkamsárásar.Hann og Dina Lohan, móðir og umboðsmaður Lindsay, hafa einnig átt í hatrammri skilnaðardeilu sem hefur markað sín spor. Lindsay samdi lagið Confessions of a Broken Heart um raunirnar sem faðir hennar hefur valdið henni. Þrátt fyrir að hún ítreki ást sína á föður sínum í texta lagsins hefur hún enn ekki haft samband við hann og ekki er útlit fyrir að svo verði í bráð.Óvingjarnleg AnistonAngelina Jolie hefur ekkert talað við föður sinn, Jon Voight, í mörg ár, en nú er útlit fyrir sáttir.Samband Jennifer Aniston við móður sína, Nancy, var allt annað en vinalegt í mörg ár. Aniston lokaði alfarið á hana eftir að Nancy fór mikinn um dóttur sína í sjónvarpsspjallþætti árið 1996, þegar frægð Aniston var sem mest. Nancy lét það ekki á sig fá og gaf út bók um barnæsku Jennifer sem hún kallaði „Frá móður til dóttur til Vina". Eftir níu ára aðskilnað rauf Jennifer þögnina og rétti út sáttarhönd þegar skilnaður hennar og Brad Pitt stóð sem hæst. „Ég er svo ánægð að hún er ennþá hérna," segir hún um sættirnar. Angelina í sáttahug?Samband Angelinu Jolie, sem er af mörgum talin hafa valdið ofannefndum skilnaði, við föður sinn, leikarann Jon Voight, hefur líka lengi verið stirt. Þegar Voight sagði blaðamönnum árið 2002 að Angelina væri ekki í jafnvægi rauf hún öll tengsl við hann. Voight hefur í gegnum árin gert ítrekaðar tilraunir til að ná sáttum við dóttur sína, en þær hafa engan árangur borið. Í nýlegu viðtali við breska blaðið Evening Standard kom Angelina öllum á óvart þegar hún sagði að hún og faðir hennar myndu reyna að eiga einhver samskipti. „Þegar öllu er á botninn hvolft viljum við hvort öðru aðeins það besta," sagði Angelina og ýjaði þar með að því að einhverra breytinga væri von.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Sjá meira