Krafist að Marta Lovísa Noregsprinsessa afsali sér krúnunni 14. ágúst 2007 13:18
Krafan um að Marta Lovísa Noregsdrottning afsali sér titli sínum verður háværari með hverjum deginum. Hún er sökuð um að nota sér titilinn og frægðina sem honum fylgi til að græða peninga. Prinsessan hefur komið á fót skóla þar sem nemendum er kennt að tala við engla. Það vakti mikla athygli fyrir nokkru þegar Marta Lovísa greindi frá því að hún gæti talað við engla og dýr. Nokkru síðar tilkynnti hún að hún væri farin í tveggja vikna veikinda frí. Það var rakið til álags eftir fjölmiðlaumfjöllun um meint tjáskipti hennar við ferfætlinga og vængjaða sendiboða drottins. Í síðustu viku veitti hún svo viðtal við norska sjónvarpið þar sem hún tjáði sig um englana sína. Hún sagði þá ekki líkamlega í venjulegum skilningi - heldur væru þeir kærleikur. Hún lagði áherslu á að það væri jafn misjafnt og mennirnir væru margir hvernig þeir skynjuðu engla. Engin föst ímynd væri til. Sumir þekktu þá og sæju og sumir heyrðu í þeim. Prinsessan staðfesti að englar getu haft vængi, eins og á jólakortunum. Það færi allt eftir því hvernig menn sæju þá. Hún sagði að fyrir sér persónulega væru englarnir eins og ljósverur. Hún skynji þá sem mikla nærveru og kærleiksstuðning. Þannig horfi þeir við henni, og aðrir megi hafa þær skoðanir sem þeir vilja um það. Þær skoðanir hafa nú komið fram í norskum fjölmiðlum. Leiðarahöfundur Bergens Tiden sagði í blaðinu í gær að Marta Lovísa ætti að afsala sér titli sínum. Hún noti hann til að græða peninga með skóla sem hún hefur komið á fót þar sem fólki er kennt að tala við engla. Leiðarahöfundur skammar norska stjórnmálamenn og segir þá huglausa þar sem þeir hafi ekki tekið málið fyrir. Marta Lovísa sé prinsessa og mögulegur arftaki krúnunnar og verði að hegða sér innan ákveðinna marka. Vilji hún hins vegar sinna hugðarefnum sínum væri réttast að hún afsalaði sig titlinum. Norska konungsfjölskyldan hefur ekkert viljað tjá sig um málið.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Sjá meira