Hermaður svarar til saka fyrir fjöldamorð í Írak Þórir Guðmundsson skrifar 31. ágúst 2007 18:59
Bandarískur hermaður svarar nú til saka fyrir morð á sautján óbreyttum íröskum borgurum, sem voru skotnir til bana á eða við heimili sín í Írak fyrir tveimur árum. Á meðan deila bandarískir stjórnmálamenn um veru Bandaríkjahers í Írak. Blóðbaðið í íraska bænum Haditha í nóvember 2005 hófst með því að bandarískur hermaður lét lífið í vegsprengju. Deilt er um hvort einhverjir Írakar hafi veitt mótspyrnu í kjölfarið en þegar byssurnar þögnuðu lágu 24 óbreyttir Írakar í valnum, karlar, konur og börn. Liðþjálfi, sem talinn er vera höfuðpaurinn í málinu, er sakaður um að hafa ruðst inn í hús - óður yfir dauða félaga síns í vegsprengjunni - og skotið tvær konur og nokkur börn þar sem þau hjúfruðu sig saman uppi í rúmi.Á meðan réttarhöldin fara fram deila bandarískir stjórnmálamenn um veru hersins í Írak. Hillary Clinton öldungadeildarþingmaður og forsetaframbjóðandi sagði í spjallþætti í gær að engar góðar lausnir væru í stöðunni. Hins vegar væri réttast að hefja brottflutning hermanna frá Írak þegar í stað.Bandaríska þingið tekur upp umræður um framtíð hersins í Írak á næstu vikum. Innbyrðis deilur Íraka - bæði milli sjía og súnnía - og á milli andstæðra hópa sjía - hafa sjaldan verið meiri og fréttir af sprengjutilræðum og fjöldamorðum eru daglegt brauð.Nú er talið að fleiri en sjötíu þúsund óbreyttir borgarar hafi látið lífið í átökum í Írak síðan í innrásinni 2003.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fleiri fréttir „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Sjá meira