Íslenski boltinn

Sterklega orðaður við Þrótt

Hjálmar Þórarinsson gæti verið á leið heim. fréttablaðið/hörður
Hjálmar Þórarinsson gæti verið á leið heim. fréttablaðið/hörður
Þróttarar ætla sér stóra hluti í Landsbankadeildinni næsta sumar. Þeir hafa þegar fengið Sigmund Kristjánsson frá KR og annar uppalinn Þróttari, Hjálmar Þórarinsson, hefur mikinn áhuga á að gera slíkt hið sama samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Hjálmar spilaði með Fram í sumar en hann var þar sem lánsmaður frá skoska félaginu Hearts. Hjálmar er samningsbundinn skoska félaginu fram í maí á næsta ári.

„Framtíðin er óráðin hjá mér en skýrist vonandi á næstu dögum. Það er alveg inni í myndinni að fara til Þróttar en Fram kemur vissulega einnig til greina. Ég er að hugsa málið,“ sagði Hjálmar við Fréttablaðið í gær en bæði hann og félögin bíða eftir svörum frá Hearts varðandi stöðu leikmannsins; hvort það sé til í að leysa Hjálmar undan samningi eða hvort félagið vilji fá greiðslu fyrir hann og þá hve háa.

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur Fram forkaupsrétt á leikmanninum en það eitt og sér verður ekki nóg standi vilji Hjálmars til þess að fara í heimahagana. - hbg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×