Íslenski boltinn

Ekki heyrt frá Grindavík

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Óli gæti leikið með Fram næsta sumar.
Óli gæti leikið með Fram næsta sumar.
Óli Stefán Flóventsson hugsar sér til hreyfings þessa dagana en hann er að losna undan samningi við Grindavík.

„Ég og fjölskyldan erum orðin nokkuð þreytt á tímanum sem fer í þetta. Nú kemur fótboltahúsið upp í janúar og fyrir vikið mun ferðunum til Grindavíkur fjölga verulega," sagði Óli Stefán, sem býr í Grafarvogi. Hann þurfti áður aðeins að koma einu sinni í viku á æfingar suður með sjó yfir vetrartímann en með tilkomu hússins myndi þeim ferðum fjölga í 4-5 sinnum í viku.

„Ég ætla að tala við Grindvíkinga áður en ég tek ákvörðun en ég hef reyndar ekkert heyrt í Grindvíkingum. Ég hef þess utan heyrt í þrem félögum hér á höfuðborgarsvæðinu," sagði Óli Stefán en Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að Fram gangi fast á eftir Óla þessa dagana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×