Viðskipti innlent

Lykilkraftar útrásar orkugeira sameinast

Sameiningin kynnt. Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, fylgjast með þar sem Haukur Leósson, stjórnarformaður OR, kynnir samþykkt eigendafundar og stjórnar OR fyrir sameiningu REI og Geysis Green Energy.
Sameiningin kynnt. Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI, fylgjast með þar sem Haukur Leósson, stjórnarformaður OR, kynnir samþykkt eigendafundar og stjórnar OR fyrir sameiningu REI og Geysis Green Energy. Mynd/Völundur

Félögin Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy hafa verið sameinuð undir nafni þess fyrrnefnda. Eignir sameinaðs félags nema 65 milljörðum króna og heildarhlutafé 40 milljarðar. Starfsmönnum Orkuveitunnar býðst að kaupa hlut í félaginu á genginu 1,3. Félagið á að skrá á markað innan tveggja ára.

Stjórnir Reykjavík Energy Invest (REI) og Geysis Green Energy hafa undirritað samkomulag um sameiningu félaganna undir merkjum hins fyrrnefnda. Heildarverðmæti félagsins eftir sameiningu nemur um 65 milljörðum króna. Stærstu eigendur eru Orkuveita Reykjavíkur með 35,5 prósent, FL Group með 27 prósent og Atorka Group með fimmtungshlut.

Forsvarsmenn félagsins segja að við sameininguna verði til leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í fjárfestingum og þróun á sviði jarðvarma.

Stjórnarformaður félagsins verður Bjarni Ármannsson og forstjórar félagsins verða Guðmundur Þóroddsson og Ásgeir Margeirs­son. Á verkefnalista REI er bygging og kaup um 700 megawatta raforkuvinnslu sem nær meðal annars til Bandaríkjanna, Filippseyja, Grikklands, Indónesíu, Þýskalands og Eþíópíu, en framtíðarmarkmið félagsins er að framleiða þrjú til fjögur þúsund megavött fyrir lok árs 2009.

„Þetta eru mjög metnaðarfull markmið sem leiða munu til þess að til verður langstærsta orku­fyrirtæki heims á sviði jarðvarma,“ segir Hannes Smárason, forstjóri FL Group, og telur að með sameiningu þessara tveggja lykilkrafta íslenskrar orkuútrásar sé kominn öflugur vettvangur til enn frekari vaxtar. „Þarna eru auknir möguleikar á dreifðara tekjustreymi frá hinum ýmsu sviðum. En auðvitað snýst þetta aðallega um verkefnin sem fyrir dyrum standa,“ segir hann og telur mikið svigrúm til verðmætaaukningar á næstu árum. „En auðvitað þarf að vinna vel úr spilunum. Samkeppni er einhver, en við teljum okkur geta náð leiðandi stöðu,“ segir hann og kveður stefnt að skráningu félagsins á markað jafnskjótt og auðið er. „Því ferli hröðum við töluvert með því að sameina félögin því reksturinn er þá strax frá fyrsta degi umfangsmeiri en ella.“

Bjarni Ármannsson, sem staddur var í Gíneu Bissá í gær, segir stefnt að markaðsskráningu vorið 2009. „Saman eru þessi félög með mörg fjárfestingaverkefni í farvatninu og ná saman að stækka hraða og ná meiri áhættudreifingu. Þá hafa þau meira mannafl og fjármagn til að sækja fram. Það mun hraða bæði fjárfestingu og skráningu frá því sem annars hefði orðið.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×