Gengi Alvotech hrynur Árni Sæberg skrifar 3. nóvember 2025 10:03 Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech. Vísir/Vilhelm Gengi hlutabréfa í íslenska líftæknifyrirtækinu Alvotech hefur lækkað um rúmlega 21 prósent frá því að markaðir hér á landi opnuðu í morgun. Þá hefur gengi félagsins í sænsku kauphöllinni lækkað um rúm 23 prósent. Félagið tilkynnti í gær að það fengi að svo stöddu ekki leyfi fyrir hliðstæðulyf við Simponi og lækkaði afkomuspá sína í leiðinni.
Alvotech fær ekki að svo stöddu markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir líftæknilyfið AVT05 sem er hliðstæðulyf við Simponi, sem er lyf við gigt. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Alvotech sendi frá sér í gærkvöldi í framhaldi af svarbréfi frá Lyfjastofnun Bandaríkjanna, FDA, sem hafði borist fyrirtækinu. Í tilkynningunni kom einnig fram að eftir svar FDA hefði Alvotech endurmetið afkomuspá ársins 2025, sem var kynnt í maí síðastliðnum. Ný spá um heildartekjur ársins sé 570 til 600 milljónir bandaríkjadollara og spá um aðlagaða EBITDA framlegð sé einnig lækkuð í 130 til 150 milljónir bandaríkjadollara. Lækkun EBITDA spárinnar megi rekja til fjárfestinga í úrbótum á framleiðsluaðstöðunni, sem einnig valdi því að hægja þurfi tímabundið á framleiðslu. Úrbæturnar muni hins vegar einnig styðja við vaxtaráform Alvotech og stuðla að árangursríkri markaðssetningu nýrra hliðstæðna.“ Svo virðist sem markaðurinn hafi ekki tekið vel í fréttirnar en þegar þessi frétt er skrifuð klukkan 10 hefur gengi bréfa félagsins hér heima lækkað um 20,42 prósent og gengið í Svíþjóð um 24,26 prósent. Félagið er einnig skráð í Bandaríkjunum en markaðir opna þar sá bæ síðar í dag.
Alvotech Lyf Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira