Tileinkum Ásgeiri sigurinn 13. september 2007 00:01
Eiður Smári Guðjohnsen sagði að sigur Íslands á Norður-Írlandi í gær hafi verið tileinkaður Ásgeiri Elíassyni sem lést á sunnudaginn síðastliðinn. Landsliðsmennirnir báru sorgarband af því tilefni í leiknum í gær. „Við erum allir sammála um að tileinka Ásgeiri sigurinn og viljum við votta fjölskyldu hans samúð okkar. Við erum nokkrir í hópnum sem höfum spilað undir hans stjórn en missirinn er ekki einungis mikill fyrir knattspyrnuheiminn heldur var hann líka frábær persóna sem er mikið saknað.“ Eiður hefur átt við meiðsli að stríða undanfarna mánuði. „Það er meiriháttar fínt að vera kominn aftur í fótbolta og er ég ánægður með að hafa spilað þessar 35 mínútur í leiknum. Leikurinn var þó ekkert æðislegur. Við buðum hættunni heim í síðari hálfleik en misstum aldrei trúna og uppskárum sigur. Miðað við spilamennsku okkar áttum við hann kannski ekki skilinn en miðað við þá vinnu sem við höfum lagt í þessa tvo leiki áttum við þrjú stig fyllilega skilin.“ Grétar Rafn Steinsson átti þátt í báðum mörkum íslenska liðsins. „Það er búin að vera mikil jákvæðni í kringum liðið frá Kanadaleiknum og það er búinn að vera stígandi í þessu hjá okkur. Það er mun skemmtilegra að fara inn á völlinn og vera á Íslandi þegar jákvæðni er en ekki neikvæðni. Það getur verið niðurdrepandi að koma heima og fá skít og skömm þrátt fyrir að vera að leggja sig fram og berjast,” sagði Grétar. „Nú er allt annað að koma heim og það kemur fyrir vikið auka neisti í menn og þeir eru virkilega tilbúnir að sýna það og sanna fyrir þjóðinni að þeir séu að leggja sig fram. Það gekk allt upp í þessum tveimur leikjum og leiðinlegt að við höfum ekki unnið Spánverjana því við áttum það skilið. Í heildina litið eru þetta mjög góð úrslit fyrir okkur sérstaklega þegar við lítum til baka og sjáum hversu lélegt þetta hefur verið,” sagði Grétar Rafn sem var ekki hrifinn af norður-írska liðinu. „Svona lið á ekki að fara á stórmót. Við erum búnir að taka sex stig af þeim og það lið sem við tökum sex stig af á ekki að fara á stórmót,” segir Grétar Rafn sem lítur bjartsýnn fram á veginn. „Við verðum að halda okkur áfram á jörðinni en það er frábært að áhorfendur og fjölmiðlar skuli þjappa sér að baki okkur og hjálpa okkur,” sagði Grétar.
Mest lesið „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Enski boltinn „Einn af mínum bestu leikjum á tímabilinu“ Körfubolti Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Íslenski boltinn Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Íslenski boltinn Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Enski boltinn Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti Enski boltinn „Sem betur fer slapp þetta“ Íslenski boltinn Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ Íslenski boltinn Vinicius kom í veg fyrir að Barcelona yrði sófameistari Fótbolti Fleiri fréttir Hermann: Góðlátlegt grín en ekkert ofbeldi Sagan segir að KR verði meistari „Sem betur fer slapp þetta“ „Hefði viljað fá tvær vítaspyrnur“ Ísak og Sverrir fengu báðir heilahristing „Ekki í fyrsta sinn sem við komum til baka á þessum velli“ „Eigum að díla betur við svona stöður“ „Vitum að þessir gæjar búa yfir gríðarlegum gæðum“ Uppgjörið: FH - Fram 3-4 | Fyrirliðinn tryggði endurkomusigurinn Uppgjörið: Keflavík - Víkingur 1-3 | Víkingur sótti stigin þrjú suður með sjó Kennir vallaraðstæðum um: „Sérstaklega þurr og stamur“ ÍBV - Breiðablik 1-2 | Hægt og hugmyndasnautt Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 1-2 | Fyrsti sigur Skagamanna kom gegn bitlausum Stjörnumönnum Sjáðu mörk KR-inga á Hlíðarenda Læti í göngunum og Hermann sakaður um að slá til KR-ings Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ „Erum með montréttinn á Akureyri“ „Gerist eiginlega ekki betra“ Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Þróttur og HK á toppnum Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Uppgjörið: ÍBV - Víkingur Reykjavík 3-2 | Nýliðarnir með endurkomusigur Sjá meira