Pete býr í hjólhýsi 6. júlí 2007 02:15 Fyrirsætan fer huldu höfði þessa dagana og er miður sín vegna framhjáhalds kærastans. Hér er hún þó voða glöð á Glastonbury-hátíðinni að horfa á Doherty spila.
Allt virðist vera í hers höndum á milli Kate Moss og Petes Doherty en Pete býr núna í hjólhýsi. Hann fór fyrir rétt á þriðjudaginn fyrir að hafa verið gripinn með eiturlyf í fórum sínu og fékk harða viðvörun frá dómaranum en slapp við fangelsisvist í bili. Kate er búin að sparka Pete út og hefur einnig skipt um lás á húsinu sínu bara til þess að hann komist ekki inn. Eftir fréttir af framhjáhaldi Petes flúði Kate til Parísar í von um að slúbbertinn Pete elti hana. Í staðinn fór hann þó á rosalegt fyllerí og hefur látið hafa eftir sér að það hafi verið hann sem sleit sambandinu. „Ég þarf mitt svigrúm,“ sagði hann. Þau hafa víst rifist heiftarlega undanfarna daga og Doherty líkir sambúðinni við að búa með umsátursmanni og finnst eins og Moss kæfi sig. „Hann segir að það eina sem Kate geri sé að öskra á sig í símanum og skella á,“ sagði heimildarmaður. Kate virðist vera alveg miður sín yfir málinu og þurfti að hætta við að koma fram á tískusýningu Johns Galliano fyrir Dior. Stuttu eftir að fyrirsætan fór til Parísar komu flutningamenn heim til hennar og báru allt dót Dohertys út. Þar mátti sjá meðal annars málverk af Kate, gítara og gamlar ferðatöskur. Jefferson Hack, barnsfaðir Kate, hefur svo miklar áhyggjur af ástandi fyrirsætunnar að hann hefur komið henni til aðstoðar með því að sjá um dóttur þeirra Lilu Grace. Þó svo að Pete ber sig vel er augljóst að honum líður alls ekki vel. Í réttinum á þriðjudaginn var hann spurður um heimilisfang og gaf þá upp heimili Moss án þess að hugsa en sagði svo: „Reyndar hefur það breyst.“ Svo brotnaði hann saman og skældi, rokkarinn mikli.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira