Siggi stormur missti af blíðunni 6. júlí 2007 02:30 Eyðir miklum tíma í húsi sínu á Spáni á hverju ári og fer þangað allt að fimm sinnum á ári. Fréttablaðið/Stefán „
Ef menn vilja halda mér úti þá er það mér að meinalausu. Það þarf þá bara að safna í púkk svo ég geti verið hérna áfram,“ segir veðurfræðingurinn Sigurður Ragnarsson, gjarnan nefndur Siggi stormur, sem missti algjörlega af veðurblíðunni sem verið hefur víðast hvar á landinu síðustu tvær vikur. Sigurður hefur verið staddur á sínu öðru heimili í Torrevieja á Spáni frá miðjum júní, eða einmitt frá þeim tíma sem góðviðriskaflinn hófst. Sigurður hafði í hyggju að snúa heim á ný á næstu dögum en viðurkennir að óskir um að hann héldi sig áfram á Spáni hafi borið á góma. Vilja gárungarnir meina að hann sé „óhappa“ og að gælunafnið stormur sé engin tilviljun. Sjálfur tekur hann samsæriskenningunum með jafnaðargeði. „Það er erfitt að halda því fram að rigningin fylgi mér því hér hefur verið brakandi blíða allan tímann,“ sagði Sigurður og hló dátt þegar Fréttablaðið bar málið undir hann. Hann kveðst þó ekkert svekktur yfir því að hafa misst af blíðunni og segist sannfærður um að hann eigi sjálfur eftir að upplifa langan góðviðriskafla síðar í sumar. „Landinn er nú þannig að hann vill helst hafa vont veður á klakanum á meðan hann er sjálfur í útlöndum. Ég hef meira að segja fengið tölvupósta þar sem ég er beðinn um að spá rigningu heima á Íslandi. En ég er ekki svona, ef góða veðrið á Íslandi gleður landsmenn, þá er ég glaður.“
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira