Ingvi Hrafn óttast ekki laxaleysið 1. júlí 2007 02:30 Laxár landsins hafa verið að gefa óvenju lítið af sér það sem af er sumri. „
Ég hef ekki nokkrar áhyggjur af ástandinu. Ég er sannfærður um að það kemur sprenging á næstunni, spurningin er aðeins hvenær hún verður,“ segir sjónvarps-, laxveiði- og athafnamaðurinn Ingvi Hrafn Jónsson, sem eins og undanfarin ár er við stjórnvölinn í Langá í Borgarfirði í sumar. Sem kunnugt er hefur laxveiði á landinu verið með minnsta móti það sem af er sumri og er Langá þar engin undantekning. Að sögn Ingva hafa 20 laxar veiðst það sem af er, sem er það minnsta sem hann hefur upplifað á þeim 35 árum sem hann hefur hrærst í bransanum. „Laxinn er núna um 10 dögum seinni en í meðalári og það gerist einfaldlega stundum að hann er seinna á ferðinni. Stundum er hann 10 dögum fyrr, eins og gerðist hjá mér fyrir nokkrum árum, og þá gaf júnímánuður 200 laxa. Meðalmánuður er um og yfir 100 laxar,“ segir Ingvi Hrafn. Margar kenningar hafa verið uppi um mögulegar örsakir þess að laxgengdin er eins lítil og raun ber vitni en ljóst þykir að miklir þurrkar og sólríki í júnímánuði hafi áhrif, enda flestar ár vatnsminni en venjulega á þessum árstíma. Ingvi Hrafn hefur fulla trú á að laxarnir skili sér. „Einu áhrifin sem þetta hefur áhrif á er að veiðin í júní er léleg en þá verður því mun meira í hinum mánuðunum. Og ég er opinn til 20. september þannig að það er nægur tími til stefnu,“ sagði Ingvi Hrafn og glotti.
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Lífið Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Lífið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Sjá meira