Innlent

Umræða um málefni Byrgisins enn ekki hafin

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, sagði nóg komið af umræðum um frumvarpið um Ríkisútvarpið.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, sagði nóg komið af umræðum um frumvarpið um Ríkisútvarpið. MYND/Gunnar
Þingmenn héldu áfram að ræða frumvarp um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins þegar þingfundur hófst klukkan hálf ellefu. Utandagskrárumræða um málefni Byrgisins hafði verið boðuð við upphaf þingfundar en hún hefur enn ekki hafist.

Stjórnarandstaðan hefur sótt það hart að fá slíka umræðu eftir að svört skýrsla Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins var birt í upphafi viku. Þingmenn stjórnarandstöðunnar ítrekuðu sáttarboð sitt þess efnis að hleypa frumvarpinu í gegn um þingið ef gildistöku frumvarpsins verður frestað fram yfir kosningar. Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, var spurður um hvort það væru þingmenn flokksins sem kæmu í veg fyrir að þessu sáttarboði væri tekið en Jón svaraði þessu á þá leið að þingmenn væru að fara með gamanmál.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×