Hommarnir hefja leik í kvöld 13. júní 2007 00:00 Gætu hæglega stillt upp tveimur liðum í deildinni í ár þar sem 25-30 manns mæta á æfingar og leiki liðsins. „
Það er komin mikil tilhlökkun í hópinn. Það verður gott að geta spilað reglulega til að undirbúa sig sem best fyrir HM í haust,“ segir Hafsteinn Þórólfsson, leikmaður og talsmaður Strákafélagsins Styrmis, sem nánast eingöngu er skipað samkynhneigðum leikmönnum. Ár er liðið frá því að liðið var stofnað en í kvöld spilar liðið sinn fyrsta opinbera leik hér á landi þegar það tekur á móti liði Henson í Utandeildinni. „Við stefnum bara á að gera okkar besta í sumar og munum að sjálfsögðu spila til sigurs. Við vitum í raun lítið um hvar við stöndum en við munum setja okkur markmið eftir nokkra leiki í deildinni,“ segir Hafsteinn. Þátttaka liðsins í Utandeildinni í sumar er liður í undirbúningi liðsins fyrir Heimsmeistarakeppni samkynheigðra knattspyrnuliða sem fram fer í Argentínu í september. Lið Styrmis hefur þegar farið í tvær keppnisferðir til Kaupmannahafnar og London. „Þetta er alvöru,“ segir Hafsteinn, en á meðal styrktaraðila liðsins eru Glitnir, Reykjavíkurborg, Menntamálaráðuneytið og Orkuveitu Reykjavíkur. Mikill áhugi er hjá félagsmönnum og mæta allt að 30 manns á hverja æfingu Styrmis. Og þess ber að geta að liðið er ekki einvörðungu skipað samkynhneigðum leikmönnum. „Ætli það séu ekki um 90% af liðinu sem eru samkynhneigðir. En hjá okkur er enginn útilokaður og allir eru velkomnir á æfingar. Það eru engir fordómar hjá þessu liði.“ Fyrir áhugasama er rétt að benda á að leikurinn í kvöld fer fram á gervigrasvelli Fram í Safamýrinni og hefst kl. 20:30.
Mest lesið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Fleiri fréttir Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Sjá meira