Kylie sögð vera hjónadjöfull 14. maí 2007 04:00 Kylie Minogue. Ástralska leikkonan er laus og liðug og hefur verið sökuð um að draga giftan mann á tálar
Ástralska söngkonan Kylie Minogue á undir högg að sækja í fjölmiðlum um þessar mundir en hún er sökuð um að hafa komist upp á milli leikstjórans Alexanders Dahm og eiginkonu hans, Lauru. Fjölmiðlar birtu fyrir skömmu myndir af Kylie og Alexander í fríi í Chile þar sem þau léku við hvern sinn fingur. Í ljós kom hins vegar að Alexander þessi á von á barni með eiginkonu sinni, Lauru, eftir aðeins tvo mánuði og söngkonan smávaxna var ekki lengi að fá á baukinn fyrir að hafa táldregið giftan mann. Alexander sver hins vegar af sér allar sakir og segir að aðeins hafi verið um viðskiptaferð að ræða. Oliver Martinez. Samband hans og Kylie sprakk skömmu eftir að hún hafði jafnað sig á brjóstakrabbameininu. News of the World birti á sunnudaginn viðtal við Lauru þar sem hún beið í öngum sínum eftir manni sínum. „Ég hef enga ástæðu til annars en að trúa manninum mínum og segi þess vegna að hann á ekki ástarsambandi við Kylie," sagði Laura í símaviðtali við blaðið frá Mexikó-borg. „En þetta hefur hins vegar verið versta vika lífs míns og þegar ég á að vera njóta síðustu daganna áður en barnið fæðist þá er maðurinn minn sakaður um að sofa hjá einni stærstu stjörnu heims," bætti Laura við en þau hjónin eiga fyrir þriggja ára gamlan son. „Hann er búinn grátbiðja mig um að trúa ekki neinu sem skrifað er og segir ekkert vera í gangi milli hans og Kylie. Ég hef engan annan möguleika en að taka orð hans trúanleg," segir Laura. Kylie er nýhætt með franska leikaranum Oliver Martinez og þá, eins og nú, neitaði hún að framhjáhald hefði verið orsökin. „Þau eru að vinna saman að verkefni en ég skal vera sú fyrsta til að viðurkenna að þessi orðrómur hefur virkilega tekið á," lýsir Laura yfir. „Það sem angrar mig samt mest er að útskýra fyrir bæði fjölskyldu og vinum að ekkert sé í gangi og mér þykir miður að Kylie skuli fá á sig þennan stimpil."
Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Sjá meira