Framsóknarmenn missa sig í ræðustól á Klörubar 22. mars 2007 09:45 Klörubar á Kanarí. Guðni Ágústsson Sturla S. Þórðarson Framsóknarflokkurinn „
Ef einhver heldur ennþá, að hér sé um grín að ræða eða þá að menn séu bara að fá sér einn léttan er það hinn mesti misskilningur. Sjaldgæfara er að menn fái sér bjór, heldur en kaffi eða vatn, enda er fólk saman komið til þess að rökræða um pólitík," segir Sturla S. Þórðarson sem búsettur er úti á Kanaríeyjum. Vikulega gengst hann fyrir stjórnmálafundum á Klörubar og segir hann miklu meira fjör í stjórnmálaumræðunni þar en á Íslandi. Framsóknarmenn eru hlutfallslega miklu fleiri á Kanaríeyjum en á Íslandi. Þeir fylgjast vel með og lýst ekki á blikuna sé horft til skoðanakannana. "Hér er mikið fjör í pólitíkinni alla vega meira fjör á framsóknarfundum hér en heima," segir Sturla sem er í stöðugu sambandi við forystu flokksins - sem nú horfir suður á bóginn og veltir fyrir sér þessari óvæntu vakningu á sólarströndinni. Guðni, Haukur og Ísólfur. Steðja á Klörubar þar sem helstan hitan er að finna meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins. Samtals hafa nú yfir 2.000 manns mætt á þessa fundi frá því að þeir hófust 21. október 2006. Á nýjustu fundina, 10. mars og 17. mars mættu, á fyrri fundinn 170 manns og á þann síðari 240. "Á báðum fundunum voru skoðaðir möguleikar á nýjum ríkisstjórnum og ég sagði fundarmönnum mína skoðun á því, hvernig ástand yrði heima, ef kæmi vinstri stjórn! Stöðnun, jú, hún mundi hefjast að sjálfsögðu á landsbyggðinni, þar kæmi fyrr atvinnuleysi. Framsókn er eini flokkurinn á Íslandi sem hefur haft umhverfis- og náttúrverndarmál á sinni stefnuskrá frá stofnun flokksins!" Fréttablaðið greindi frá því fyrir skemmstu að metaðsókn var á fund framsóknarmanna á Klörubar þegar Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra mætti á staðinn eða 360 manns. Ísólfur Gylfi Pálmason var gestur þar fyrri skemmstu og von er á Hauki Halldórssyni, fyrrverandi formaður stéttasambands bænda. Sturla gerir sér vonir um góða mætingu þá enda mjög margir bændur sem hafa vetursetu á Kanaríeyjum. Sturla segir mikla alvöru á bak við oft bráðskemmtilegar ræður, og jafnvel hefur komið fyrir, að fólk hefur orðið svo æst, að þurft hefur að víkja því úr ræðustóli. "Ég vil taka það fram, að það er vegna pólitískra hitamála og menn missa sig stundum í að nota óviðeigandi orðalag. Að sjálfsögðu er hér mikið af eldra fólki og öryrkjum, sem hafa mikilla hagsmuna að gæta. Okkur hér finnst fyrir neðan allar hellur að geta ekki kosið hér í maíkosningunum nema að fara í dagsferð til Las Palmas. Bráðnauðsynlegt er að flytja kjörkassa niður á ensku ströndina, þar sem allir Íslendingarnir eru."
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira