Jamie Spears vill láta loka dóttur sína inni 10. október 2007 14:50 Britney og Jamie talast ekki við MYND/Getty
Jamie Spears, faðir Britney Spears, leggur nú á ráðin, ásamt lögfræðingi sínum, um hvernig sé best að koma Britney aftur í meðferð. Þrátt fyrir að síðasta lyfjapróf söngkonunnar hafi verið neikvætt og að hún hafi mætt á foreldranámskeið þá er faðir hennar enn mjög áhyggjufullur. Heimildarmaður The Sun segir Jamie vilja koma á fundi með Britney og þeim sem að henni standi til að ræða opinskátt um vanda hennar. Hann er hræddur um að hún fari sér að voða og óttast jafnvel að hún geri sonum sínum mein. Þá hefur hann áhyggjur af villtu líferni hennar og miklum fjárútlátum. Hann hefur í því samhengi bent á ítrekaðar hóteldvalir hennar í Los Angeles þrátt fyrir að eiga þar tvö afbragðsfín heimili. Samkvæmt heimildarmanninum ýta nýlegar uppákomur hjá Britney enn undir áhyggjur föður hennar en í síðustu hóteldvöl á hún að hafa tekið upp á því að sækja um starf barstúlku og um helgina hringdi hún hágrátandi í lögregluna og hélt því fram að brotist hafi verið inn hjá henni. Lögregla kom á staðinn en kom ekki auga á nokkuð óeðlilegt á heimili hennar. Myndbandið við Gimme More, nýjasta lag söngkonunnar, er svo ekki beint til þess fallið að slá á áhyggjur Jamie en þar bregður dóttir hans sér í gervi strippara og dinglar sér upp við súlu. Lagið þykir þó ekki alslæmt og er von á smáskífunni í búðir þann 22 október næstkomandi. Nýja breiðskífan Blackout er svo væntanleg þann 29. október. Myndbandið og súludansinn má sjá hér.
Mest lesið Stjörnum prýtt svita-partý Lífið Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Lífið Orðin háð því að vera „enginn“ Lífið Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Lífið Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Lífið Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ Lífið Versace-ást Villa Vill kveikjan að lagi og skúlptúr Tónlist Léttist við stöðugt pizzuát Lífið Fleiri fréttir „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svita-partý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Sjá meira