Lífið

Sá Síðasta konung Skotlands í Úganda

Fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra eftir á ferð hennar um Afríku.
Fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra eftir á ferð hennar um Afríku.

„Það höfðu allir miklar skoðanir á myndinni enda er stjórnartíð Idi Amins mörgum enn í fersku minni,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, fréttamaður á Stöð tvö, um viðbrögð Úgandabúa við kvikmyndinni The Last King of Scotland.

Sveinn er nýkominn heim eftir að hafa fylgt Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra eftir á ferðalagi hennar um Afríku undanfarna viku. Þegar hópurinn var í Kampala, höfuðborg Úganda, notaði Sveinn tækifærið og brá sér í kvikmyndahús og sá myndina The Last King of Scotland sem fjallar um Idi Amin, einræðisherrann sem stjórnaði landinu með harðri hendi á árunum 1971-1979.

„Idi Amin er langt því frá þjóðhetja í Úganda, þvert á móti. Í myndinni er honum lýst sem vænisjúkum og dyntóttum harðstjóra og það virtist koma heim og saman við þá ímynd sem Úgandabúar hafa af honum. Við fórum með myndavél með okkur og ræddum við nokkra sýningargesti, þar á meðal mann sem mundi vel eftir stjórnartíð Amins og hafði reynt hana á eigin skinni. Við sýnum þessi viðtöl á Stöð tvö væntanlega innan fárra daga.“

Eins og kunnugt er fékk Forest Whitaker Óskarsverðlaunin á dögunum fyrir túlkun sína á harðstjóranum í myndinni, sem er að mestu leyti tekin í Úganda. Sveinn segir að bíógestir hafi verið upprifnir þegar þeir báru kennsl á þekkt kennileiti frá heimalandi sínu. „Það fór til dæmis iðulega kliður um salinn þegar myndir komu af forsetahöllinni eða flugvellinum í Kampala, enda ekki á hverjum degi sem Úganda er sögusvið mynda sem njóta alþjóðlegrar velgengni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.