Eli er David Hasselhoff Íslands 15. júní 2007 07:30 Eli Roth ræddi mikið um Ísland í spjallþætti Conan O‘Brian.
Hryllingsmyndaleikstjórinn Eli Roth var í viðtali við spjallþáttakónginn Conan O‘Brian á mánudaginn í New York og var spjallið undirlagt af umræðum um Ísland. Í þættinum var sýnt brot úr Hostel II sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum og þar var notast við tökur úr Bláa lóninu. Eli hefur komið hingað ótal sinnum en eins og svo oft hefur komið fram vann hann á bóndabæ fyrir austan fjall sem unglingur. Þar fékk hann hugmyndina að sinni fyrstu mynd, Cabin Fever, sem skaut honum uppá stjörnuhimininn. Fram kom í þættinum að Ísland væri eftirlætisstaður leikstjórans. „Þeir sem komu fyrst til Íslands voru norrænir víkingar. Og þeir tóku með sér allar fallegustu konurnar frá Bretlandi,“ sagði Eli, sem augljóslega hefur nýtt sér sögukennsluna úr Thule-auglýsingunum og varð tíðrætt um fegurð íslenskra kvenna. Leikstjórinn dró ekki dul á hrifningu sinni á landi og þjóð og hvernig honum hefði verið tekið hér. Sagðist í rauninni vera það sama og David Hasselhoff væri fyrir Þjóðverja. „Eða eins og Fonzie úr Happy Days,“ sagði Eli. Frægt er orðið þegar góðvinur Eli, leikstjórinn Quentin Tarantino, kom fram í sama þætti og talaði ansi fjálglega um frjálslega hegðun íslenskra kvenna og ekki síst drykkjarvenjur þeirra. Eli minntist eilítið á heimsókn þeirra félaga fyrir rúmu ári síðan og sagði að hann hefði lokkað Tarantino til að koma með sér með orðunum. „Þú verður svona eins og Frank Sinatra þarna.“ Og taldi nokkuð víst að það hefði ræst. „Hann hefði getað stjórnað landinu, slíkar voru vinsældirnar.“
Mest lesið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Lífið Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer Lífið samstarf Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið Fleiri fréttir Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Morten Harket greinist með Parkinson Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Sjá meira