Helga fer til Helsinki 25. febrúar 2007 12:00 Helga styður manninn sinn, Eirík Hauksson, í blíðu og stríðu í Eurovision. MYND/Anton
Helga Guðrún Grímsdóttir, kona Eurovision-stjörnunnar Eiríks Haukssonar, mun fylgja manni sínum á lokakeppnina í Helsinki í maí. Þetta verður ekki í fyrsta skiptið sem Helga Guðrún styður við bakið á Eiríki því hún var honum einnig til halds og trausts þegar hann söng Gleðibankann í Bergen árið 1986 og þegar hann söng fyrir Noregs hönd í Róm fimm árum síðar. „Það er ægilega gaman að þessu. Þetta er eins og að vera í miðju ævintýri,“ segir Helga Guðrún um Eurovision-keppnina. „Það var svo rosalega vel staðið að báðum þessum keppnum, sérstaklega í Bergen. Það er alltaf mikið um að vera, líka fyrir stuðningsmennina. Maður fær að upplifa svo margt og það er alltaf mjög gaman að kynnast nýju fólki,“ segir hún. Helga Guðrún segist hingað til ekki hafa gefið Eiríki sérstök ráð áður en hann hefur stigið á svið frammi fyrir milljónum áhorfenda. „Ég veit að hann gefur allt sem hann á og svo er bara að reyna að ná að slappa aðeins af áður en stundin rennur upp svo það verði ekki mikið stress í gangi.“ Hvað varðar fataval Eiríks, segist Helga vissulega segja sitt álit en ekkert meira en það. „Það eru aðrir sem koma þar við sögu en ég er ekki til í að horfa á hvað sem er,“ segir hún og hlær.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira