Lífið

Marcia Cross ólétt

Cross var skikkuð til að halda kyrru fyrir heima hjá sér þar til að tvíburar hennar koma í heiminn, og verða tvær þættir af Desperate Housewives því teknir upp þar.
Cross var skikkuð til að halda kyrru fyrir heima hjá sér þar til að tvíburar hennar koma í heiminn, og verða tvær þættir af Desperate Housewives því teknir upp þar. MYND/Reuters

Marcia Cross, sem fer með hlutverk Bree Van De Kamp í þáttunum Desperate Housewives, gengur með tvíbura. Læknir leikkonunnar hefur skipað henni að halda kyrru fyrir heima þangað til að tvíburarnir koma í heiminn í apríl.

Framleiðendur þáttanna setja það þó ekki fyrir sig, og nú er unnið að því að koma upp sviði í húsi leikkonunnar. Það mun verða nákvæm eftirlíking af húsi Bree í Desperate Housewives, og mun Cross taka upp tvo þætti í þessu umhverfi. Það er þó ekkert reiðarslag fyrir þáttaröðina að Cross skuli hafa verið skikkuð til að halda sig heima. Töluvert var farið að sjást á leikkonunni, en persóna hennar í þáttaröðinni er ekki ólétt. Því stóð til að skrifa Cross út úr þessari þáttaröð á tveimur þáttum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.