Lífið

Minimalískur í Madríd

Ben Frost ástralski tónlistarmaðuinn Ben Frost er á leiðinni til Madríd í byrjun febrúar.
Ben Frost ástralski tónlistarmaðuinn Ben Frost er á leiðinni til Madríd í byrjun febrúar. MYND/Rósa

Ástralski tónlistarmaðurinn Ben Frost heldur tónleika á listahátíð í Madríd 2. febrúar næstkomandi. Ben gefur út hjá Bedroom Community sem er útgáfufyrirtæki Valgeirs Sigurðssonar.

Ben mun á hátíðinni flytja nýtt tónverk, I Lay My Ear to Furious Latin, sem hann samdi fyrir sex gítara og býflugnabú. Verkið er flutt utandyra þar sem viðarstaflar eru á víð og dreif um ákveðið svæði og í hverjum stafla er mismunandi hljómur. Að auki hafa þeir allir einn sameiginlegan hljóm.

Ben var valinn úr þúsundum flytjenda og er verkið eitt af fjórum tónverkum sem verða flutt á hátíðinni. Alls munu sjö listamenn af ýmsum toga taka þátt í hátíðinni.

Einfalt hugtak á stórum skalaBen, sem hefur verið búsettur hér á landi í tvö ár, er mjög ánægður með að hafa fengið boð um að flytja verkið og segir það mikinn heiður bæði fyrir sig og Ísland. „Ég var í mánuð að semja það og þetta er frekar minimalískt verk,“ segir hann. „Þetta er einfalt hugtak sem er framkvæmt á stórum skala. Ég hlakka mikið til og það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út.“ Til New York og ÁstralíuNýjasta plata Ben Frost, Theory of Machines, kom út hér á landi í fyrra. Nýja verkið er þó ekki að finna á henni. Platan er væntanleg í dreifingu víða um heim í mars og ætlar Ben að nota tækifærið og ferðast um heiminn til að kynna plötuna. Fer hann meðal annars til New York í mars og til heimalands síns Ástralíu. Alþjóðlegur listamaðurAuk sóló-verkefna sinna vinnur Ben verk sín á alþjóðlegan hátt í ýmsum myndum, svo sem í tengslum við gallerí-innsetningar, tónsmíðar fyrir kvikmyndir, auk dans- og margmiðlunaruppsetningar.

Hann hefur meðal annars samið tónlist fyrir Íslenska dansflokkinn og starfað með fjöllistahópnum Cicada. Að auki hefur Ben unnið sem upptökustjóri og gert endurhljóðblandanir á tónlist fyrir listamenn á borð við Björk, Steintrygg, Neotropic, Lawrence English, Stars Like Fleas og Ai Yamamoto. Samstarf í GróðurhúsinuBen hefur starfað náið með Valgeiri Sigurðssyni, forsprakka Bedroom Community, í hljóðveri hans Gróðurhúsinu. Á Theory Of Machines nýtur Ben einmitt fulltingis Valgeirs, auk Sigtryggs Baldurssonar trommuleikara, og Hildar Guðnadóttur knéfiðluleikara.

freyr@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.