Bandaríkin hótuðu árás 23. september 2006 08:15 forseti Pakistans Musharraf hitti George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í gær. MYND/AP
Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hitti George W. Bush að máli í gær í Hvíta húsinu. Heimsóknin komst í hámæli vegna ummæla sem Musharraf lét falla í viðtali í þættinum 60 Minutes á CBS fyrir fundinn; að Bandaríkjamenn hefðu hótað að „sprengja Pakistan aftur á steinöld“ ef ríkið fylkti ekki liði í „stríðinu gegn hryðjuverkum“. Yfirmaður leyniþjónustu Pakistana segir að Richard Armitage, þáverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi hótað sér þessu í samtali stuttu eftir árásina á Tvíburaturnana 11. september árið 2001. Einnig á Armitage að hafa farið fram á að pakistönsk stjórnvöld kæmu í veg fyrir að almenningur í landinu sýndi opinberlega stuðning við téða árás. Armitage neitar ásökunum, en játar að hafa verið harðorður; að ríkisstjórnin í Pakistan þyrfti að ákveða hvort hún væri „með eða á móti“ Bandaríkjunum. Dan Bartlett, ráðgjafi Hvíta hússins, sagðist ekki vita nákvæmlega hvað Armitage hefði sagt við pakistanska ráðamenn, en það lægi fyrir að eftir árásirnar hefði forseti Pakistans verið krafinn svara af Bandaríkjamönnum um „hvort hann stæði með hinum siðmenntaða heimi eða talíbönum og al-Kaída“.
Erlent Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira