Arnaldur fulltrúi Barna á kvikmyndahátíð 13. desember 2006 09:00 Fannst það lítil fyrirhöfn að veita sérstökum verðlaunum handa Börnum viðtöku á Ítalíu. „
Þetta sýnir bara hvað Ísland er lítið. Arnaldur var staddur þarna í bænum vegna þess að kvikmyndahátíðin er tvískipt; annars vegar er þetta kvikmyndahátíð og hins vegar bókmenntahátíð sem Arnaldur tók þátt í og honum fannst það ekkert tiltökumál að veita verðlaununum viðtöku," útskýrir Ragnar Bragason, leikstjóri kvikmyndarinnar Börn, sem á sunnudaginn fékk sérstök verðlaun dómnefndar á ítölsku kvikmyndahátíðinni Courmayeur Noir. Glæpasagnahöfundurinn Arnaldur Indriðason veitti þeim viðtöku fyrir hönd leikstjórans. Væntnalega gerir það tilviljunina enn skemmtilegri að Arnaldur er sem kunnugt er höfundur Mýrarinnar en kvikmynd byggð á bókinni hefur slegið öll aðsóknarmet hér á landi. „Það var hringt í mig á laugardeginum og ég beðinn um að koma og taka við þeim en þar sem ég var í Búdapest að leggja lokahönd á sýningareintökin fyrir Foreldra gafst mér því miður ekki tækifæri til þess," bætir leikstjórinn við en hið sjálfstæða framhald Barna verður frumsýnt 19. janúar á næsta ári. Ragnar segir kvikmyndahátíðina vera haldna í litlum bæ við ítölsku Alpana en Ingvar E. Sigurðsson, einn framleiðandi myndarinnar, hafi farið fyrir hönd aðstandenda myndarinnar og tekið þátt í blaðamannafundum og öllu því sem fylgir slíkum hátíðum en hann leikur einmitt einnig aðalhlutverkið í Mýrinni. Formaður dómnefndarinnar var Mike Hodges sem gerði meðal annars kvikmyndina Get Carter með Michael Caine í aðalhlutverki og hreifst hann mjög af hinni íslensku kvikmynd. Ragnar komst ekki til Ítalíu þar sem hann var í Búdapest að klára sýningareintök fyrir myndina Foreldrar. . Ingvar E. Sigurðsson ræddi við formann dómnefndar, Mike Hodges, sem hreifst mjög af hinni íslensku mynd. .
Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum bannað að hanga í stiganum Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira