Kennir óvinum sínum um ósigurinn í Eurovision 20. maí 2006 06:00 Silvía var brött á leiðinni af hótelinu í keppnishöllina. Hér er hún án hárkollunnar og því með klút. Fréttablaðið/Valli „
Ég er það besta sem hefur hent þessa djöfuls keppni,“ sagði Silvía Nótt við evrópska fjölmiðla eftir að ljóst var að hún kæmist ekki í aðalkeppnina í Eurovision. „Þið ljótu skepnur. Þið kjósið forljóta Finna, sem eru ekki einu sinni með alvöru förðunarfræðinga. Þið völduð ekki mig af því að ég er ekki dræsa frá Hollandi og ekki djöfulsljót tík frá Svíþjóð,“ öskraði Silvía í gegnum tárið í ríflega tíu kvikmyndavélar auk sinna eigin. „Drulliði ykkur í burtu,“ vældi íslenska ofurstjarnan og strunsaði útgrátin til Rómaríó sem reyndi að róa hana. Aðdáandi kallaði til hennar: „Silvía, Ísland elskar þig. Ísland elskar þig Silvía.“ Spurð af Fréttablaðinu af hverju hún teldi að Evrópa hefði hafnaði henni svaraði hún: „Láttu mig vera. Ég vil fá pabba minn. Ég vil fara heim til pabba.“ Fleiri aðdáendur kölluðu á eftir henni: „Þú ert yndisleg. Þú ert sú besta.“ Rómaríó reyndi að róa stjörnuna og sagði henni að án hennar væri hann ekkert.Silvía var hundfúl eftir keppnina.Silvía sagði að hún hefði verið borin rógi: „Það hefur einhver drusla verið að tala illa um mig. Það halda allir að ég sé einhver tík og ég er ekki tík.“ Hún vildi ekki viðurkenna að púað hefði verið á hana í höllinni á fimmtudaginn. „Það hefur einhver verið að ljúga því.“ Spurð hver yrðu næstu skref hennar svaraði hún í gegnum tárin: „Ég ætla að fara á annan stað, þar sem er eitthvað að fólki með heila, skilurðu. Ég ætla að fara til Ameríku þar sem ég á fullt af frægum vinum og þar sem ég ætla að gera nýja plötu með Silvíu Night. Ógeðslega töff plötu fyrir alla sem eru töff, en ekki fyrir einhverja júrótrass-lúða í buffalo-skóm, því þeir vita ekki einu sinni hvað er töff, skiluru.“ Silvía hefur aldrei staðið sig betur á sviðinu í Aþenu en hún gerði í fyrrakvöld. Svo virtist sem púið í byrjun lagsins hafi styrkt hana. Grikkirnir hafa hins vegar ekki fyrirgefið henni fyrir að hafa í þrígang blótað á fyrstu æfingunni, þar sem hún sagði meðal annars sviðsmanni að fara til fjandans. Fjölmiðlar í Grikklandi greindu síðan frá því að hún hefði sagt það við grísku þjóðina. Einnig náðist á myndband þar sem Rómaríó sagði við Silvíu, þar sem hann bar hana út í bíl af skemmtistað í Aþenu, að þau ættu að drífa sig burt frá þessu ljóta gríska fólki. Rómaríó Estevez og Pepe Luigi voru látnir svara fyrir það á grískri sjónvarpsstöð. - gag@frettabladid.is
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Fleiri fréttir Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Sjá meira