Sykurmolar undrandi á erlendum áhuga 22. september 2006 16:00 Björk Það er ekki síst nærvera Bjarkar sem hefur vakið áhuga erlendra fjölmiðla en Sykurmolarnir lögðu grunninn að velgengni sólóferils hennar.
Endurkoma Sykurmolanna hefur vakið mikla athygli en eins og Fréttablaði greindi frá í gær hefur fjöldi erlendra fjölmiðla verið með fréttir af tónleikunum á vefsíðum sínum. Einar Örn Benediktsson, söngvari sveitarinnar, var upp með sér yfir þessum mikla áhuga en viðurkenndi að þetta kæmi sér spánskt fyrir sjónir. „Við erum að gera þetta hérna á Íslandi vegna þess að við erum íslensk,“ segir hann en benti hins vegar á að Flugleiðir væru að bjóða ferðir á atburðinn og því hefði verið viðbúið að eitthvað af útlendingum myndi koma hingað til að sjá hljómsveitina á sviði. „Síðast þegar Björk spilaði hérna heima kom lítill hópur frá Japan.“ Einar verður hins vegar hálf undrandi þegar blaðamaður upplýsir að veftímarit í Norður-Kóreu hafi fjallað um endurkomuna. „Ef þeir í Norður-Kóreu hafa áhuga á samstarfi verðum við auðvitað að skoða allar hliðar málsins,“ segir Einar Örn og bætir við að ekki hafi verið tekin nein ákvörðun um hvað Sykurmolarnir ætli sér að gera fyrir erlenda fjölmiðla. „Hið undarlega í málinu er að við erum bara með þessa einu tónleika og erum ekkert að kynna eitthvað verkefni eins og svo oft þegar fólk er að gera svona.“ Athygli hefur vakið að allur ágóði af tónleikunum rennur til útgáfufyrirtækisins Smekkleysu og hefur því verið fleygt fram að fyrirtækið sé á vonarvöl. Einar Örn vísar því algjörlega á bug en segir að það glími við lítinn markað rétt eins og önnur útgáfufyrirtæki. „Friðrik Erlingsson teiknaði póstkort vegna leiðtogafundar Reagans og Gorbatsjovs og var ágóðinn af því notaður til að gefa út Birthday. Þegar Sykurmolarnir og smáskífan fóru að selja voru þeir peningar notaðir til að gefa út aðrar hljómsveitir á borð við Risaeðluna og Ham,“ útskýrir Einar og segir að hluti af gróða tónleikanna verði notaður til að hnýta nokkra lausa enda en síðan verði fjármagnið notað til að skapa hresst umhverfi fyrir útgáfu.
Menning Mest lesið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira