Lífið

Lét skeggið fjúka fyrir frægðina

Sigurður lét skeggið flakka fyrir frægðina og vakti uppátækið mikla kátínu.
Sigurður lét skeggið flakka fyrir frægðina og vakti uppátækið mikla kátínu. MYN D/Strandir.is

Úrslitin í karóki-keppni vinnustaða á Ströndum réðust á laugardaginn þegar þeir átta keppendur sem komust áfram eftir harða baráttu á undankvöldi þöndu raddböndin á Café Riis.

Mikil stemning var í húsinu og sá sem stóð uppi sem sigurvegari var Sigurður Vilhjálmsson sem keppti fyrir hönd Kaupfélags Steingrímsfjarðar. Keppendur reyndu ýmislegt til að vinna hug og hjörtu dómnefndarinnar en sá sem lagði kannski hvað mest á sig var Sigurður Atlason frá Strandagaldri.

Sigurður skartar vanalega miklu og þykku alskeggi og flutti fyrra lagið sitt með skeggið í heilu lagi. Í seinna laginu brá hins vegar mörgum sveitungum Sigurðar í brún þegar hann snéri sér við því skeggið var þá farið. Hvað gerir maður ekki fyrir frægðina, sagði Sigurður þegar Fréttablaðið hafði upp á honum. Þetta vex hins vegar aftur, bætti hann við og sagðist jafnan snyrta hár sitt og skegg fyrir jólin og þau væru því bara aðeins fyrr á ferðinni en venjulega.

Sigurður var kosinn skemmtilegasti keppandinn af áhorfendum í sal og sagðist galdramaðurinn vera ánægður með þá útnefningu, hún hefði verið sárabót fyrir úrslitin. Vonandi stígur þetta mér ekki bara til höfuðs og ef ég verð farinn að syngja á almannafæri þarf ég að leita mér hjálpar, sagði Sigurður og hló en tók engu að síður skýrt fram að Sigurður Vilhjálmsson hefði verið vel að sigrinum kominn og enginn skömm væri að tapa fyrir honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.