Hryðjuverkaárás í Egyptalandi 24. apríl 2006 22:08 Mynd af vettvangi. MYND/AP
Að minnsta kosti 30 fórust og um 160 særðust, þar af fjölmargir lífshættulega, þegar þrjár sprengjur sprungu á veitingastað, kaffihúsi og í stórmarkað í ferðamannabænum Dahab í Egyptalandi síðdegis í dag. Mubarak Egyptalandsforseti segir þetta hryðjuverk sem verði að refsa fyrir. Bærinn Dahab er afar fjölsóttur og vinsæll ferðamannastaður við Aqabaflóa á austanverður Síanai-skaga. Vitni segja mikinn reyk hafa lagt frá vettvangi eftir sprengingarnar en algjör skelfing greip um sig. Tugir lögreglu- og sjúkrabíla komu á vettvang á vettvang. Sprengjunar sprungu um klukkan korter yfir fimm síðdegis að íslenskum tíma og stutt mun hafa verið á milli þeirra. Ríkissjónvarpið í Egyptalandi segir að ekki hafi verið um sjálfsvígssprengjuárás að ræða heldur hafi sprengjurnar verið fjarstýrðar. Hosni Mubarak, Egyptalandsforseti, sagði í kvöld að árásirnar væru níðingsverk hryðjuverkamanna. Hann lagði áherslu á að það yrði að hafa upp á þeim sem bæru ábyrgð á árásunum svo hægt yrði að láta þá gjalda fyrir þær samkvæmt lögum. Fyrir tveimur áratugum komu á sjónarsviðið hreyfing sem leggur áherslu á að koma Mubarak frá völdum og stofna strangtrúað íslamskt ríki í Egyptalandi. Í október 1990 var þáverandi þingforseti ráðinn af dögum og síðar var reynt að myrða þrjá ráðherra. Í júní 1995 var gerð árás á býlalest Mubaraks í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu en forsetinn slapp frá því tilræði ómeiddur. Um það bil 1200 manns hafa fallið í átökum en samtökin hafa aðallega látið á sér kræla í suðurhluta landsins á árunum 1992 til 1997 en þá myrtu liðsmenn samtakanna 58 erlenda ferðamenn og 4 Egypta í Luxor. Síðustu ár hafa fjölmargar sprengjuárásir verið gerðar á ferðamannastaði á sunnanverðum Sinai skaga. Í júlí í fyrra fórust rúmlega 60 og um 200 særðust þegar þrjár sprengjur sprungu á ferðamannastaðnum Sharm al-Sheik. Ekki liggur fyrir nú hverjir bera ábyrgð á árásinni í dag. Fregnir herma að egypsk yfirvöld hafi komist á snoðir um starfsemi hryðjuverkasamtaka á Síanaí skaga en ekkert er vitað frekar um það. Samkvæmt upplýsingum NFS mun hópur Íslendinga hafa farið í leiguflug til Egyptalands fyrir helgi en þeir munu halda til á öðrum stað í landinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira