Lífið

Fékk skilnaðar-SMS frá Britney í miðjum sjónvarpsþætti

Britney og Federline á Grammy-verðlaunahátíð í Los Angeles þann 8. febrúar þegar allt lék í lyndi.
Britney og Federline á Grammy-verðlaunahátíð í Los Angeles þann 8. febrúar þegar allt lék í lyndi. MYND/AP
Poppprinsessan Britney Spears hefur sótt um skilnað við eiginmann sinn Kevin Federline eftir tveggja ára hjónaband. Federline frétti af skilnaðinum í miðjum sjónvarpsþætti í gegnum SMS-skilaboð.

Federline var gestur í raunveruleikaþættinum Exposed, eða „Afhjúpaður", í Kanada þegar hann frétti að skilnaðinum í gegnum SMS. Federline hafði verið fylgt eftir allan daginn í þættinum og hafði hann meðal annars lýst yfir því hversu sterkt samband þeirra hjóna var. Talaði hann þó um að erfitt væri að vera fjarverandi frá eiginkonunni og börnunum tveimur, hinum eins árs Sean Preston og hinum tveggja mánaða Jayden James.

Hjá letterman Britney Spears mætti óvænt í heimsókn til David Letterman á mánudagskvöld. Minntist hún engu orði á skilnaðinn. Þessi mynd var tekin er hún heimsótti Letterman í mars á þessu ári.fréttablaðið/ap

Í miklu uppnámi

Um kvöldið snæddi Federline síðan kvöldverð fyrir augum myndavélanna en fór fljótt að einbeita sér að farsíma sínum. Eftir stutta stund reif hann af sér hljóðnemann og rauk út í miklu uppnámi. Sneri hann síðan aftur í þáttinn hálftíma síðar til að ljúka upptökunum.

í sjónvarpsþætti Kevin Federline lýsti yfir ást sinni á Britney í sjónvarpsþætti í Kanada skömmu áður en hann fékk SMS-skilaboð um að hjónabandið væri úr sögunni.

„Þú ert núll og nix“

Vísbendingar um að ekki væri allt með felldu í hjónabandinu voru greinilegar í útgáfuteiti Federline vegna rappplötu hans í Los Angeles í síðustu viku. Rifust þau heiftarlega sem endaði með því að Britney kallaði á hann: „Þú ert einskis virði, þú ert núll og nix", og rauk síðan í burtu hágrátandi. Nokkrum dögum síðar ætluðu þau að snæða saman kvöldverð í New York en Feder-line lét ekki sjá sig. Lífvörður Britney hljóp þá í skarðið og borðaði dýrindis matinn með söngkonunni.

Britney náði fram hefndum nokkrum dögum síðar með því að mæta ekki í útgáfuteiti Federline á næturklúbbi í New York. Þegar Federline var spurður hvar eiginkonan væri sagðist hann ekki vita það. Síðar um kvöldið þegar plötusnúðurinn skellti lagi Britney, Slave 4 U, á fóninn, brást Federline hinn versti við og skipaði honum að skipta undir eins um lag.

Einnig vakti það athygli þegar Britney kom óvænt fram í kvöldþætti David Letterman á mánudagskvöld með nýja hárgreiðslu þar sem hún minntist ekki einu orði á skilnaðinn.

Jafnframt má geta þess að fyrir tveimur vikum tók Feder-line á leigu piparsveinaíbúð í Los Angeles, í 45 mínútna keyrslu frá glæsivillu þeirra hjóna í Malibu.

Skilnaðarplaggið sem Britney sendi inn til dómstóla í Los Angeles eftir tveggja ára hjónaband.

Renndi sér á skautum

Nokkrum klukkustundum eftir að Britney sótti um skilnaðinn, þar sem hún sagði ástæðuna vera óásættanlegan ágreining, sást til hennar renna sér á skautum í Rockefeller Center í New York ásamt fyrrum umboðsmanni sínum og ráðgjafa, Larry Rudolph. Virtist hún bæði hamingjusöm og í góðu andlegu jafnvægi. Hugsanlega er ástæðan léttir eftir allt sem á undan var gengið, þar á meðal stöðugt áreitið frá fjölmiðlum vegna sambandsins undanfarin tvö ár.

Skilnaðurinn í loftinuÍ rauninni hafa fjölmiðlar haldið því fram, nánast frá byrjun, að skilnaður lægi í loftinu þrátt fyrir að þau hjón hafi ávallt neitað þeim sögusögnum. Fregnir af rifrildum þeirra og að Federline væri fluttur út birtust hvað eftir annað.

Í desember í fyrra þurfti upplýsingafulltrúi Britney að neita því opinberlega að þau væru að skilja og að Federline hefði farið fram á hvorki meira né minna en 8,5 milljarða króna. „Þessi saga er ósönn og er bara til þess að skemma fyrir. Þau eru eins og flest önnur pör, þau rífast og sættast síðan. Þeim líður vel og eru hamingjusöm," sagði upplýsingafulltrúinn.

En skjótt skipast veður í lofti og nú er skilnaðurinn sem svo margir höfðu óskað eftir orðinn að veruleika. Britney hefur krafist fulls forræðis yfir börnunum tveimur. Jafnframt er talið að Federline fái lítinn pening við skilnaðinn þar sem þau skrifuðu undir hjúskaparsáttmála á sínum tíma sem fól í sér að Britney myndi halda auðæfum sínum ef kæmi til skilnaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.