Erlent

Vilja ekki sjá Playboy í Indónesíu

Frá mótmælum gegn Playboy í Jakarta í dag.
Frá mótmælum gegn Playboy í Jakarta í dag. MYND/AP

Indónesíska lögreglan hefur beðið útgefendur tímaritsins Playboy um að hætta dreifingu þess í landinu. Fyrsta hefti tímaritsins kom út í Indónesíu fyrir nokkru og brugðust þá heittrúaðir múslimar hart við. Víða um landið voru kröfugöngur haldnar og í höfuðborginni Jakarta var grjóti látið rigna yfir skrifstofur Playboy. Þar sem lítið er um nekt í blaðinu geta yfirvöld ekki stöðvað útgáfu þess heldur einungis farið þess á leit við útgefendurna að þeir taki blaðið úr sölu. Þeir segjast ætla að hugsa málið en ekki er víst að þeir verði við beiðninni þar sem tímaritið hefur runnið út eins og heitar lummur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×