Óheft frelsi möguleikanna 10. september 2006 08:30 Benedikt Erlingsson
Philippine Bausch fæddist 1940 í Þýskalandi og hóf dansnám 15 ára gömul við Folkwang-skólann í Essen en að loknu námi þar hélt hún til New York og lærði við hinn virta Juilliard-skóla þaðan sem hún var nýlega sæmd heiðursdoktorsnafnbót. Eftir að hún sneri heim tveimur árum síðar, dansaði hún við Folkwang-ballettinn sem sólódansari um nokkurra ára skeið, þar á meðal undir stjórn hins virta Kurt Jooss. Fyrsta dansverk sitt samdi hún árið 1968, en heimsfræg verk hennar hlaupa nú á tugum. Skömmu síðar tók hún við listrænni stjórn Folkwang-ballettsins og starfaði þar jafnt sem stjórnandi, danshöfundur og dansari þar til henni var boðin staða stjórnanda Wuppertal Opera Ballet. Auður Bjarnadóttir Pina Bausch tók með sér dansara úr gamla flokknum sínum og hóf að byggja upp öflugan flokk sem að hluta starfar enn með henni. Fljótlega var nafni flokksins breytt í Tanztheatre Wuppertal Pina Bausch en hann er nú einn af eftirsóttustu dansflokkum heims og hefur hann hlotið ótal verðlaun. Pina bausch Dansleikhús Pinu Bausch sýnir verkið Aqua í Borgarleikhúsinu næstkomandi sunnudag en aðeins verða sýndar þrjár aðrar sýningar. Á þriðja tug dansara tekur þátt í sýningunni en stórfenglega leikmyndina þurfti að flytja hingað til lands í þremur 40 feta gámum. Það væri að æra óstöðugan að ætla sér að lýsa verkum Pinu Bausch svo vel sé, en þess má þó geta að sterkra suður-amerískra áhrifa gætir í sýningunni Aqua enda var hún samin í samráði við stjórn Sao Paolo í Brasilíu og þar koma við sögu pálmatré og drykkurinn pina colada. Annað verður framtíðin að leiða í ljós en víst er að dansleikhússdrottingin mun án efa koma áhorfendum sínum á óvart.
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira