Feðgarnir mættir til starfa 10. september 2006 09:15 Feðgar og ritstjórar. Jón Trausti og Reynir eru ánægðir að vinna sé hafin við nýtt tímarit sem kemur út í lok október. MYND/GVA
Feðgarnir Reynir Traustaon og Jón Trausti Reynisson eru komnir á fullt í undirbúningi nýs tímarits sem þeir munu ritstýra í sameiningu. Í samtali við Fréttablaðið sagði Reynir að stefnt sé að útgáfu fyrsta tölublaðsins í lok októbermánaðar. Vinnuheiti tímaritsins, sem kemur út mánaðarlega til að byrja með, er Ísafold. "Ég get ekki sagt að við höfum tekið formlega ákvörðun um að Ísafold verði nafnið, en það er hljómmikið nafn og gæti allt eins orðið fyrir valinu," segir Reynir. Þeir feðgar hafa unnið saman á nokkrum fjölmiðlum áður, DV, Fréttablaðinu og síðast á Mannlífi. Fram að þessu hefur Reynir verið yfirmaður sonar síns en nú vekur athygli að þeir verða báðir titlaðir ritstjórar. "Strákurinn er bara orðinn fullnuma," segir Reynir. "Hann er annar tveggja ritstjóra og getur sagt nei við mínum hugmyndum. Það hefur líka alltaf ríkt gagnkvæm virðing okkar á milli í starfinu og við umgöngumst miklu meira eins og starfsbræður heldur en feðgar." Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum verður Reynir einn eigenda tímaritsins, og annarra miðla sem kann að verða ráðist í útgáfu á. Hann fæst þó ekki til að gefa upp hverjir koma að útgáfunni með honum, þó það verði gert áður en fyrsta blaðið kemur út. "Þetta eru fjársterkir aðilar sem eru fullfærir um að halda úti svona útgáfu og efla hana. Og já, það á eftir að koma á óvart hverjir þetta eru."
Menning Mest lesið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Lífið samstarf Eva Marie Saint er látin Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira