Erlent

Neitar að játa ósigur

Romano Prodi krafðist í dag afsökunarbeiðni frá Silvio Berlusconi, fyrir að hafa haldið því fram að brögð hefðu verið í tafli í nýafstöðnum þingkosningum á Ítalíu. Þá telur Prodi tímabært að Berlusconi játi ósigur í kosningunum. Forsætisráðherrann er hins vegar ekkert á þeim brókunum og í bréfi, sem birtist í ítölsku dagblaði í dag, sagði Berlusconi ljóst að enginn hefði sigrað í þingkosningunum síðustu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×