Innlent

Gerir kröfu í bú sakborninga

Hæstiréttur Íslands staðfesti á þriðjudaginn úrskurð Héraðsdóms um að bú Ragnars Orra Benediktssonar yrði tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Símans hf.

Ragnar Orri hafði gert þá kröfu að málinu yrði vísað frá dómi, en hann var dæmdur á síðasta ári í þriggja mánaða fangelsi fyrir hlutdeild sína í "Landssímamálinu" svokallaða.

Síminn hf. gerir einnig kröfu í bú Sveinbjörns Kristjánssonar, Kristjáns R. Kristjánssonar og Árna Þórs Vigfússonar, að sögn Evu Magnúsdóttur, upplýsingafulltrúa Símans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×