Innlent

Stofninn lítill og ræfilslegur

Geitungur Meinlaus ef hann er látinn í friði segir meindýraeyðir.
Geitungur Meinlaus ef hann er látinn í friði segir meindýraeyðir.

Geitungastofninn á Íslandi er mjög illa á sig kominn það sem af er sumars. Búin eru lítil og fá og geitungarnir sjálfir eru ræfilslegir. Að sögn Róberts Ólafssonar meindýraeyðis er ástæðan fyrir þessu hrun stofnsins síðasta sumar þegar tvísýnt var um að hann lifði yfirleitt af, en líklegast þykir að einhvers konar sveppasýking hafi verið þar á ferðinni. Þó getur verið að stofninn taki kipp seinna í sumar, líkt og gerðist í fyrra.

Hann nefnir að þegar geitungabúin séu lítil og á aðgengilegum stöðum sé oft auðveldara fyrir fólk að losa sig við þau sjálft frekar en að fá aðstoð meindýraeyðis. Ef rétt sé að staðið eigi að vera hægt að fjarlægja geitungabú á öruggan hátt með því að úða á það eitri sem kaupa má úti í búð.

Aðspurður að því hversu mikil hætta stafi af geitungum svarar Róbert því að þeir séu meinlaus dýr sé þeim ekki ógnað. Vissulega beri varúðar að gæta ef um bráðaofnæmi sé að ræða, en almennt hafi geitungur enga ástæðu til að stinga, sé hann látinn í friði. Best sé að skipta sér bara ekkert af þeim.

Landsmenn geta því andað léttar, það sér ekki fram á geitunga­faraldur í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×