Innlent

Íslenskar bækur kynntar

Ísland tók þátt í hinni árlegu Madrídarbókakaupstefnu sem stóð frá 26. maí til 11. júní. Kaupstefnan var haldin undir berum himni og voru íslenskar bókmenntir kynntar í Norðurlandabásnum. Þetta er tíunda árið í röð sem íslenskar bækur eru á boðstólunum á hátíðinni.

Margar íslenskar bækur, þýddar yfir á spænsku, voru í boði á kaupstefnunni og má þar til dæmis nefna Brekkukotsannál eftir Halldór Laxness og Engla alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson. Auk þeirra voru margar þýddar fornsögur til sölu. Árlega sækja um þrjár milljónir manna hátíðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×