Lífið

Gullgleði í stað Diskókvöldsins

Diskókvöld Margeirs verður ekki haldið aftur undir sama nafni
Diskókvöld Margeirs verður ekki haldið aftur undir sama nafni

„Það verður kalt á barnum, heitt á gólfinu og þar fram eftir götunum," segir plötusnúðurinn Daníel Ólafsson, betur þekktur undir nafninu Danni Deluxe. Á annan í jólum verður haldin svonefnd Gullgleði Danna Deluxe á skemmtistaðnum Thorvaldsen og er ætlunin að hafa fjörið árlegt.

Gullgleðin kemur í stað Diskókvölds Margeirs sem haldið var í síðasta skipti í fyrra, en breiður hópur hefur hefur sótt diskókvöldið á annan í jólum í lengri tíma og því skapast mikil hefð.

Danni segir að þeir sem vanir eru að sjá Margeir geti kíkt á sig í staðinn og lofar því að enginn verði vonsvikinn. „Margeir er búinn að vera lengi að og á alla virðingu skilið. En ef fólk óttast um hvort ég geti fyllt í fótspor hans hef ég bara eitt að segja og það er að ég er með alveg risavaxnar bífur," segir Daníel af miklu öryggi.

Daníel hefur staðið á bakvið plötuspilarana í næstum tíu ár eða alveg síðan hann var 13 ára gamall. Þegar hann svo komst á menntaskólaladurinn hóf hann að spila á böllum og í því framhaldi á skemmtistöðum. „Svo í sumar er ég búinn að vera mjög duglegur við að spila á Prikinu og aðeins á Vegamótum.

Þar hefur myndast alveg frábær stemming og því um að gera að kristalla hana svona í lok ársins," segir Daníel ennfremur. Að upplagi spilar Danni helst hressa hiphop tónlist en inn á milli blandar hann hinum og þessum tónlistarstefnum og segir hann að í raun takmarkist tónlistin ekki við neitt ákveðið, nema þá kannski kántrí tónlist.

„Fólk á það til að fyllast fordómum og ótta þegar það heyrir minnst á hiphop. Þarna verða engir spreybrúsar, tússpennar, of stór föt eða sveittir unglingar. Þetta er Gullgleðin og þú getur átt þig ef þú mætir ekki."

Daníel ólafsson er á bakvið Gullgleði Danna Deluxe sem verður árlegur viðburður héðan af.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.