Segir Guð lækna í gegnum sig 18. desember 2006 06:45 Kompás hefur sannanir fyrir því að Guðmundur tæli skjólstæðinga til kynlífsathafna. MYND/Egill
Guðmundur Jónsson, forstöðumaður meðferðarheimilisins Byrgið, hefur ítrekað tælt skjólstæðinga sína til kynlífsathafna. Um þetta var fjallað í fréttaskýringaþættinum Kompási í gærkvöldi. Einnig var sagt frá málinu í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Kompás hefur undir höndum gögn sem sanna að Guðmundur tók ítrekað þátt í kynlífsathöfnum með ungum konum, skjólstæðingum sínum í meðferðarstarfinu. Byrgið hefur um árabil rekið meðferðarheimili fyrir langt leidda fíkla og alkóhólista en starfið er allt unnið á kristilegum grunni. Í þættinum í gærkvöldi vitnuðu konur um hvernig hann tældi þær til kynlífsathafna. Þar er um svokallað BDSM kynlíf að ræða þar sem valdbeiting og drottnun er grunnþema. Viðmælandi Kompáss segir Guðmund halda því fram að guð lækni í gegnum hann. Hann geti fyrirgefið syndir fyrir hönd guðs og að sæði hans lækni. Þrátt fyrir að Kompás hafi vitnisburð fjögurra kvenna um eigin reynslu og annarra á þessu sviði þvertekur Guðmundur fyrir að þessar ásakanir séu sannar. Gögn Kompáss sýna þó að Guðmundur hefur meðal annars sent konum myndir af getnaðarlim sínum. Kompás hefur einnig rannsakað fjármál Byrgisins. Í skýrslu sem varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins lét gera árið 2001, og Kompás hefur undir höndum, kemur fram að fjármálastjórn Byrgisins sé í molum. Ekki náðist í Guðmund Jónsson í gærkvöldi.
Mest lesið Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Alvöru inniveður um helgina Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Truflanir víða vegna eldingaveðurs Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Fleiri fréttir Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Bein útsending: Staða mæðra á vinnumarkaði Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sjá meira