Ég vann Ronaldo í skriðsundi 30. maí 2006 23:22 Zidane sjálfur gengur af velli, í síðasta sinn á franskri grundu. Framundan HM, í síðasta sinn.
Frakkland - Brasilía, úrslitaleikurinn á HM fyrir 8 árum. Ég horfði á þennan frábæra leik á marókósku kaffihúsi í Barcelona, þrír fjórir aðrir á staðnum og frekar dauf stemning. Kaffið var hinsvegar ósvikið, svo sterkt að ég svitnaði jafn mikið og leikmennirnir á State de France vellinum. Maður þessa leiks var Zidane, skoraði tvö skallamörk í fyrri hálfleik, slökkti gersamlega eldinn í Brasilísku leikmönnunum. Hann var að leika sinn síðasta leik á franskri grundu á laugardaginn, flott fréttamynd þar sem hann er að taka af sér fyrirliðabandið á þessum sama velli. Frakkar unnu Mexikóa 1-0, ,,vináttuleikurinn var frekar bragðdaufur'' sagði vinur minn sem sá hann í franska sjónvarpinu, ,,heimamenn skiptu ótt og títt inná, og varla marktæk frammistaða hjá mínum mönnum Frökkum.'' Sammála því, sagði ég, þótt ég hafi ekki séð leikinn. Í vináttuleikjum fyrir stórmót einsog HM þá eiga hlutirnir að vera tilraunaeldhús, prófa allar mögulegar uppskriftir, krydd og samsetningar, til að vera klár í fyrsta leik. Meira að segja Englendingar voru venju fremur góðir í æfingaleiknum gegn Ungverjum í gær, þrátt fyrir að vera greinilega með tilraunastarfsemi í uppstillingu liðsins. Það er meiriháttar kjarkað að setja fermingadrenginn og undrabarnið Theo Walcott frá Arsenal í liðið, þrátt fyrir að augljóst sé að þar er stórkostlegur knattspyrnumaður að koma í heiminn. Frakkar voru hreint alls ekki tilbúnir í síðustu heimsmeistarakeppni og töpuðu eftirminnilega í opnunarleiknum, í svo leiðinlegum leik að heimurinn þurfti áfallahjálp að 90 mínútum loknum. Franski forsetisráðherrann Dominique de Villepin er búinn að hitta franska liðið í æfinguabúðum í Clairefontaine skammt frá París og stappa í þá stálinu. Þetta er skemmtilegt lið á góðum degi, verst að þeir eiga ekki fimm eða sex eintök af Tierry Henry, það vantar tilfinnanlega fleiri afburðaleikmenn einsog hann og Zidane, og vonandi er eitthvað eftir á tankinum hjá honum blessuðum. Í umræddum úrslitaleik var grannur táningur í fremstu sóknarlínu Brassanna, sjálfur Ronaldo sem hefur heldur látið á sjá hinn síðari ár. Það eru margir að vona að hann lifni við í Þýskalandi, þótt það sé kannski ólíklegt, Ronaldo er nett latur og jafnvel sérhlífinn ef marka má hvernig hann spilar með Real Madrid. Ég er alltaf svolítið montinn af því að hafa unnið hann í skriðsundi fyrir nokkrum árum, í sundlaug í Cannes í Frakklandi. Ég sá hann koma álengdar og haltra ofaní laugina, sjálfsagt nýstiginn uppúr erfiðum meiðslum. Ég stóðst ekki mátið þegar hann svamlaði líktog ósjálfbjarga gamalmenni í miðri lauginni, og tók kröftugan skriðssundssprett, fór örugglega frammúr honum og að bakkanum hinumeginn. Ronaldo vissi reyndar ekki af þessari keppni, en samt, þetta eru staðfest úrslit, ég vann.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Spaun steig ekki feilspor en stór nöfn í brasi Golf Borga fimm milljarða fyrir táning Enski boltinn Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Íslenski boltinn Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Erika berst við þá sænsku, úrslit NBA og US Open Sport Sló heimsmet og sagði annað vera tímasóun Sport Man. Utd með í slaginn um Ekitike Enski boltinn Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Enski boltinn Sjáðu Reed ná afar fágætum albatross með mögnuðu höggi Golf Daninn orðinn stjóri Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Borga fimm milljarða fyrir táning Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Bíða eftir gúmmíi og spila á Þórsvelli eins og stelpurnar Freyr missir stjörnuleikmann í marga mánuði Draumur Cunha rættist Lindex-mótið á dagskrá í kvöld Morata og fjölskylda hans fékk morðhótanir Sané mættur til Tyrklands Mótherjar Íslands urðu fyrir áfalli rétt fyrir EM Forsetinn gaf öllum nýja bíla Bað þjóðina um að fyrirgefa þeim Íslensku konurnar niður um eitt sæti á FIFA-listanum Pólski þjálfarinn segir af sér eftir deilurnar við Lewandowski Alexander-Arnold kominn með númer Sú markahæsta frá upphafi „með hreina samvisku“ Mömmu þjálfarans fannst framkoma Bellingham viðbjóðsleg Sané fær ofurlaun hjá Galatasaray Leverkusen vill varnarmann Liverpool Grealish fer ekki með á HM félagsliða Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Þróttur fékk kröftugan framherja sem þarf að bíða fram að stórleiknum Breiðablik búið að semja við Damir Skaut fast á umboðsmann Gyökeres: „Hótanir og kúgun virka ekki á mig“ „Auðvitað þyrstir okkur í sigur sem fyrst“ „Óhjákvæmilegt að maður brjóti hjarta einhvers“ Sjá meira