Stálu frá Coke og reyndu að selja Pepsi 23. október 2006 22:52 MYND/Getty Images
Tveir menn, sem sakaðir eru um að hafa ætlað að stela viðskiptaleyndarmálum frá Coca-Cola og selja þau til PepsiCo játuðu sekt sína fyrir dómi í Bandaríkjunum í dag. Ibrahim Dimson og Edmund Duhaney gætu átt yfir höfði sér 10 ára fangelsi og þurft að greiða jafnvirði rúmlega 17 milljóna íslenskra króna í sekt. Réttarhöld yfir Joyu Williams, fyrrverandi ritara hjá Coca-Cola, hefjast 13. nóvember nk. en hún mun hafa verið í slagtogi við Dimson og Duhaney. Henni er gefið að sök að hafa stolið sýnum og selt þeim þau. Duhaney mun hafa játað gegn því að fá vægari refsingu auk þess sem hann muni vitna gegn Williams fari mál hennar á endanum fyrir dóm. Dimson, Duhaney og Williams voru öll ákærð 11. júlí sl. að því er fram kemur á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC. Þegar þau gáfu sig fram við fulltrúa PepsiCo og buðu sýni og upplýsingar til sölu höfðu fulltrúar fyrirtækisins þegar samband við Coca-Cola og aðstoðuðu bandarísku alríkislögregluna, FBI, við að upplýsa málið. Alríkislögreglumenn funduðu svo með Dimson, Duhaney og Williams í gerfi fulltrúa PepsiCo. Buðust þeir til að borga jafnvirði rúmlega 103 milljóna íslenskra króna fyrir sýnin og upplýsingarnar. Auk þess náðist Williams á myndband þar sem hún var að stela sýnum og skjöldum hjá Coca-Cola.
Erlent Fréttir Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira