Hamas-liðar varaðir við að verja hryðjuverk 18. apríl 2006 08:25 Af vettvangi í Tel Aviv í Ísrael í gær. MYND/AP
Bandarísk stjórnvöld hafa varað Hamas-hreyfinguna við því að verja hryðjuverk. Formælandi samtakanna sagði í gær að sjálfsvígsárás í Tel Aviv í Ísrael í gær hefði verið lögmæt sjálfsvörn. 9 féllu í sjálfsvígssprengjuárás 16 ára liðsmanns Heilags stríðs fyrir framan fjölfarinn skyndibitastað í gær og er árásin sú mannskæðasta í Ísrael í rúmt ár. 50 særðust í árásinni. Hamas-samtökin leiða nú ríkisstjórn Palestínumanna. Formælandi þeirra sagði í gær að hermdarverkið væri lögmæt sjálfsvörn gegn hernámi Ísraela. Abbas, forseti Palestínumanna sagði það hins vegar víðs fjarri og fordæmdi árásina. Bandaríkjastjórn fordæmir árásina og segir það hlutverk heimastjórnar Palestínumanna að koma í veg fyrir hryðjuverk. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær heimastjórnina til að fordæma sjálfsvígsárásir. Annan sagði kvartetinn svokallaða, Bandaríkjamenn og Rússa auk fulltrúa Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðann ætla að funda um stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs í New York þann níunda maí næstkomandi. 17 ára palestínskur unglingur féll þegar Ísraelsher gerði flugskeytaárás á bæinn Beit Lahiya í gærkvöldi. Herinn gerði einnig árás á meintar bækistöðvar palestínskra vígamanna í Gaza-borg, en að sögn talsmanns palestínskra yfirvalda féll enginn í þeirri árás. Óttast er að með árásunum í gær sé hafin ný hrina árása fyrir botni Miðjarðarhafs.
Erlent Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira