Fyrsti arkitektatvíæringurinn 6. september 2006 11:30 Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem rísa mun við miðbakkann í Reykjavík Fyrsta framlag Íslands á Feneyjartvíæring byggingarlistarinnar.
Íslendingar taka þátt í byggingarlistatvíæringnum í Feneyjum í fyrsta sinn en nú um helgina verður nýtt tónlistar- og ráðstefnuhús landsmanna kynnt á þessum virta vettvangi. Feneyjartvíæringuinn er þekktastur fyrir myndlist en færri vita að þar eru einnig haldnar sýningar í tengslum við kvikmyndir, tónlist, dans- og leiklist auk byggingarlistarinnar. Fimmtíu lönd taka þátt í þessum tíunda tvíæringi byggingarlistarinnar en yfirskrift ársins er Cities, architecture and society. Albína Thordarson, formaður Arkitektafélags Íslands, segir að þetta séu viss tímamót í íslenskri byggingarsögu því þrátt fyrir að arikektar þeir sem hönnuðu tónlistar- og ráðstefnuhúsið séu danskir séu Íslendingar nú að slást í hópinn. Hin Norðurlöndin hafa lengi tekið þátt í þessum byggingartvíæringi og verið áberandi þar. Það er líka vel við hæfi að sýna tónlistar- og ráðstefnhúsið nú því yfirskrift þessa tvíærings gæti útlagst sem Borgir, byggingarlist og samfélag en þetta hús mun án efa breyta ásýnd borgarinnar og hafa mikil áhrif á samfélagið hér. Albína segir of snemmt að áætla nokkuð um áhrif eða þýðingu þess að Íslendingar taka þátt í þessum viðburði en kveðst sannarlega vona að framhald verði á því. Lagt er upp með að Tónlistarhúið verði stærsta og vandaðasta menningarhús landins og mun það til dæmis hýsa Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í tónlistarhúsinu verða þrír tónleikasalir auk ráðstefnuaðstöðu á heimsklassa. Við hlið hússins verður hótel og innangengt milli bygginganna. Þórhallur Vilhjálmsson fer fyrir hönd fyrirtækisins Portus til Feneyja en félagið sér um byggingu og rekstur tónlistar- og ráðstefnuhússins en Þórhallur er jafnframt umsjónarmaður íslenska sýningarskálans. Okkar þátttaka hefst formlega með fjölmiðlafundi næstkomandi föstudag en svokallaðir þjóðarskálar hafa verið að opna alla þessa viku. Von er á góðum gestum á föstudaginn en fyrirfólk og frammámenn verða viðstaddir opnunina. Dorrit Moussaieff forsetafrú kemur sem fulltrúi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra en þau bjóða formlega til þessarar opnunar, útskýrir Þórhallur. Auk hennar verða fulltrúar frá Reykjavíkurborg viðstaddir auk fulltrúa frá teiknistofu Henning Larsens sem hannaði húsið en þess má geta að stofa sú hannaði einnig nýopnað Óperuhús Kaupmannahafnar. Myndlistarmaðurinn Ólafur Elíasson sem hannar nokkurs konar ytra byrði og tengibyggingar hússins og næsta nágrenni þess verður einnig viðstaddur opnunina. Byggingu hússins hefur verið beðið með eftirvæntingu um árabil en stefnt hefur verið að því að opna það árið 2010. Nánari upplýsingar um húsið má finna á heimasíðu þess, www.tonlistarhusid.is.
Menning Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira