Nýtt tímarit um Reykjavík 15. desember 2006 13:30 Carmen Jóhannsdóttir og Erla Gísladóttir. Ritstjórn getrvk.com ætlar að þefa uppi skemmtilegustu viðburðina í borginni. MYND/Heiða
Nýtt veftímarit að nafni getrvk.com fer í loftið í dag, en það mun vera fyrsta veftímaritið með þessu sniði hér á landi. „Þetta er fimm manna hópur sem mun leita uppi bestu viðburðina af því sem er í gangi hverju sinni. Við viljum finna það besta sem er í boði og mæla með því fyrir lesendur,“ sagði Carmen Jóhannsdóttir, ritstjóri getrvk.com. „Þetta er svona „event“-blað, við mælum með tónleikum, plötusnúðum, veitingastöðum og öllu sem okkur finnst flott,“ sagði hún. Á heimasíðunni getrvk.com geta áhugasamir skráð sig á póstlista til þess að fá blaðið í pósthólfin sín á hálfsmánaðar fresti. „Þetta er alveg eins og að fá blað inn um lúguna, nema að það berst á netfangið,“ útskýrði Carmen. „Fólk flettir því meira að segja frá vinstri til hægri.“ Blaðið mun innihalda ýmiss konar umfjallanir og viðtöl. „Það verður líka svolítið alþjóðlegt af því að allt er skrifað á ensku,“ útskýrði Carmen. Þrátt fyrir að mörg blöð birti viðburðaskrár á síðum sínum er Carmen þess fullviss að getrvk.com eigi fullt erindi við fólk. „Það er til fullt af bleðlum og ókeypis miðlum í borginni, en það eru mest allt prentuð blöð. Þetta hefur ekki verið gert áður og okkur fannst kominn tími til. Svona fær fólk þetta alveg upp í hendurnar,“ sagði hún. Hópurinn að baki getrvk.com stendur fyrir útgáfupartíi á Rex í kvöld. „Allir sem hafa aldur til eru velkomnir,“ sagði Carmen hlæjandi. „Fólki mun líka gefast kostur á að skrá sig á póstlistann,“ bætti hún við, en með í för verða tveir plötusnúðar frá Barcelona. „Við ætlum að hafa alþjóðlega klúbbastemningu eftir miðnætti,“ sagði Carmen kát.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira