Gullgleði í stað Diskókvöldsins 14. desember 2006 12:15 Diskókvöld Margeirs verður ekki haldið aftur undir sama nafni „
Það verður kalt á barnum, heitt á gólfinu og þar fram eftir götunum," segir plötusnúðurinn Daníel Ólafsson, betur þekktur undir nafninu Danni Deluxe. Á annan í jólum verður haldin svonefnd Gullgleði Danna Deluxe á skemmtistaðnum Thorvaldsen og er ætlunin að hafa fjörið árlegt. Gullgleðin kemur í stað Diskókvölds Margeirs sem haldið var í síðasta skipti í fyrra, en breiður hópur hefur hefur sótt diskókvöldið á annan í jólum í lengri tíma og því skapast mikil hefð. Danni segir að þeir sem vanir eru að sjá Margeir geti kíkt á sig í staðinn og lofar því að enginn verði vonsvikinn. „Margeir er búinn að vera lengi að og á alla virðingu skilið. En ef fólk óttast um hvort ég geti fyllt í fótspor hans hef ég bara eitt að segja og það er að ég er með alveg risavaxnar bífur," segir Daníel af miklu öryggi. Daníel hefur staðið á bakvið plötuspilarana í næstum tíu ár eða alveg síðan hann var 13 ára gamall. Þegar hann svo komst á menntaskólaladurinn hóf hann að spila á böllum og í því framhaldi á skemmtistöðum. „Svo í sumar er ég búinn að vera mjög duglegur við að spila á Prikinu og aðeins á Vegamótum. Þar hefur myndast alveg frábær stemming og því um að gera að kristalla hana svona í lok ársins," segir Daníel ennfremur. Að upplagi spilar Danni helst hressa hiphop tónlist en inn á milli blandar hann hinum og þessum tónlistarstefnum og segir hann að í raun takmarkist tónlistin ekki við neitt ákveðið, nema þá kannski kántrí tónlist. „Fólk á það til að fyllast fordómum og ótta þegar það heyrir minnst á hiphop. Þarna verða engir spreybrúsar, tússpennar, of stór föt eða sveittir unglingar. Þetta er Gullgleðin og þú getur átt þig ef þú mætir ekki." Daníel ólafsson er á bakvið Gullgleði Danna Deluxe sem verður árlegur viðburður héðan af. .
Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Fleiri fréttir „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi Sjá meira