Britney komin með nýjan 14. desember 2006 11:45 Britney spears kominn með nýjan gæja sem lítur vel út á pappírum.
Söngkonan Britney Spears sást á dögunum með nýjum manni. Ekki er langt síðan að Britney skildi við rapparann Kevin Federline, eiginmann sinn til tveggja ára, en með honum á hún tvö börn. Undanfarnar vikur hefur Britney verið mikið í fréttum, þá aðallega fyrir tryllingsleg drykkjulæti ásamt nýrri vinkonu sinni, Paris Hilton. Fyrir skömmu sást poppdívan Britney Spears með nýjan mann sér við hlið, en er það dagblaðið The New York Post sem greinir frá þessu. Maðurinn heitir Jonathan „JR" Rotem og er hann. Jonathan og Britney sáust leiðast saman í verslunarmiðstöðinni The Grove, en þar héldust þau hönd í hönd, fóru í bíó og gengu svo saman inn á öldurhús. Viðstaddir segja að Britney hafi setið í kjöltu Jonathans og látið vel að honum. „Þau sátu saman og voru ástleitin á svip. Ég gat ekki betur séð en þau væru afar ástfanginn," segir ónefndur heimildamaður The New York Post. Jonathan þessi er talsvert virtari listamaður en fyrrverandi eiginmaður Spears og hefur hann unnið með mönnum á borð við Snoop Dogg, Dr. Dre, The Game, Destiny's Child og Britney sjálfri. Hann fæddist í Suður Afríku og ungur að aldri snéri hann sér að tónlist. Jonathan JR Rotem er sagður vera nýr kærasti Britney Spears. Í dag á hann eigið útgáfu fyrirtæki, Beluga Heights sem staðsett er í Los Angeles. Jonathan þessi er af mörgum talinn einn heitasti hiphop- taktframleiðandinn í bransanum í dag og er hann á hraðri uppleið. Ekkert hefur enn fengist staðfest í þessum fréttum, en hvorki Britney né Jonathan hafa tjáð sig um málið við fjölmiðla. Nýlega kom Kevin Federline fram í viðtali og sagði þar að hann væri algjörlega kominn yfir Britney og að honum stæði á sama hvort hún fyndi sér annan mann eða ekki. Federline sjálfur hefur ekki verið bendlaður við aðra konu síðan hann skildi við Britney, að undanskilinni klámmyndastjörnunni Kendru Jade, en seinna neitaði hún öllum kynferðislegum tengslum við rapparann.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Lífið samstarf Fleiri fréttir Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Sjá meira