Á ófyrirséðu flakki 13. desember 2006 10:00 Rithöfundurinn Jorge Luis Borges. Handritin verða læst inni í skáp að nýju. NordicPhoto/ getty images
Örvæntingarfullri þriggja vikna leit starfsmanna bókabúðarinnar Lame Duck í Cambridge í Massachusetts-ríki í Bandaríkjunum að tveimur handrita argentínska rithöfundarins Jorge Luis Borges lauk á mánudag þegar gersemarnar fundust í versluninni. Greinir fréttavefur Yahoo! frá þessu vandræðalega tilstandi. Bókabúð þessi selur sjaldgæfar bækur, listmuni og handrit en starfsmenn hennar týndu eða töldu að handritunum tveimur hefði verið stolið á nýafstaðinni bókasýningu. Handritin tvö, „Pierre Menard, höfundur Don Quixote“ og „Babelbókasafnið“, sem bæði voru gefin út árið 1939, eru metin á rúmar 66 milljónir íslenskra króna. Alþjóðalögreglan Interpol, sem berst jafnan af elju gegn fjölþjóðlegri glæpastarfsemi, var komin í málið ásamt fagaðilum á staðnum en handritin voru venju bundið læst inni í peningaskáp. Haft er eftir eiganda verslunarinnar, John Wronoski, að hann hafi verið skömmustulegur en ósköp feginn þegar handritin komu í leitirnar. Starfsfólkið hafði snúið versluninni á hvolf tíu eða tólf sinnum á undanförnum þremur vikum og honum sjálfum varla komið dúr á auga allan þann tíma. Fundust handritin á endanum bak við ljósmynd í plastslíðri sem farið hafði verið með á téða bókasýningu en sem betur fer ratað á ný í þessa bókabúð Ófélegu andarinnar.
Mest lesið Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Lífið Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Lífið Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Lífið Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Bíó og sjónvarp 50+: Grái fiðringurinn hjá kallinum ekkert endilega vesen Áskorun Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Lífið Bragason leikur Zeldu prinsessu Lífið Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Lífið „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Lífið Fleiri fréttir Bragason leikur Zeldu prinsessu Borgarbörnin orðin sveitaballasjúk: „Ef þú ferð þangað sérðu ekki einn síma á lofti“ Næturskrunið eyðileggi svefninn og ungmennin vansvefta Ótrúleg upplifun að vera í algjöru myrkri á tónleikum Tognaður í báðum lærum og blöðrur á öllum tám Sætar og seiðandi einhleypar sumarskvísur Coldplay kom óvart upp um framhjáhald forstjórans Útilokar fimmta hjónabandið: „Ég held ég sé búinn með það“ Sýnishorn úr nýjustu mynd Hlyns Pálmasonar Pete Davidson að verða pabbi: „Nú vita allir að við sváfum saman“ Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Connie Francis er látin „Maður þarf alltaf að hafa augun opin“ „Ég gat ekki haldið aftur tárunum“ Birta og Króli eiga von á dreng Sumarlegt og ofurhollt kínóasalat að hætti Jönu Emma Watson svipt ökuleyfinu Yngsti gusumeistari landsins Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Sjá meira