Sakaður um miðlun vændis og ofbeldi 28. nóvember 2006 06:00 Í miðborg helsinki Hneyksli skekur finnska Hægriflokkinn en grunur leikur á að framkvæmdastjóri flokksins hafi beitt ofbeldi og miðlað vændi.
Harri Jaskari, framkvæmdastjóri Hægriflokksins í Finnlandi, getur átt margra ára fangelsisdóm yfir höfði sér ef hann verður fundinn sekur um að hafa miðlað vændi, haft í hótunum og beitt konur ofbeldi meðan hann var framkvæmdastjóri flokksins, að sögn finnlandssænska dagblaðsins Hufvudstadsbladet. Jaskari, sem er í leyfi frá starfi sínu, hefur að sögn finnskra fjölmiðla viðurkennt að fyrrum vinkona hans frá Eistlandi hafi tekið á móti viðskiptavinum heima hjá honum eftir að sambandi þeirra var lokið, en segir að hann hafi ekki vitað um starfsemi hennar. Hægriflokkurinn greiddi leiguna á húsnæðinu. Þá er Jaskari talinn hafa beitt konur ofbeldi á eistneskum krám. Jaskari-málið er til rannsóknar hjá lögreglu og hefur verið til umræðu í finnska þinginu. Hufvudstadsbladet segir að Jaskari hafi engan pólitískan stuðning, ekki einu sinni þingmanna Hægriflokksins, og að hann geti ekki vænst þess að fá starf sitt aftur. Hanna-Leena Hemming, flokkssystir hans, segir að hann ætti að hafa vit á því að gefa ekki kost á sér fyrir þingkosningarnar. „Þetta er stór persónulegur harmleikur,“ segir Jyrki Katainen, formaður Hægriflokksins.
Erlent Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira