Leikarar pæla í Sólarferð 9. október 2006 11:15 Leikarahópur Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi stefnir næstu vikur inn á spennandi og óþekkt svið í nýju verkefni sem hann kalla Dogma.
Leikarahópur Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi stefnir næstu vikur inn á spennandi og óþekkt svið í nýju verkefni sem hann kalla Dogma. Með heitinu er vísað til kenningasmíða sem fastar eru í sessi, en hópur leikara fer næstu fjórar vikur í vinnu með starfsaðferðir sínar og vana. Tilgangurinn er að endurskoða föst vinnukerfi, grandskoða aðferðir og finna nýjar. Í lok tímabilsins verður efnt til opinberra sýninga á vinnu hópsins. „Við vitum ekkert hvað við erum að fara út í," sagði Steinunn Knútsdóttir, dramatúrg Leikfélagsins. „ Þetta er tilraun. Við vitum ekkert hvað gerist, ekki heldur hvar árangur af vinnu hópsins verður fluttur fyrir almenning þegar þar að kemur." Hópinn skipa Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Davíð Guðbrandsson, Friðrik Friðriksson, Hildigunnur Þráinsdóttir, Orri Huginn Ágústson, Sóley Elíasdóttir, Valur Freyr Einarsson, en Eggert Þorleifsson og Marta Nordal hafa tekið að sér að „bounca" hópinn, koma með viðbrögð við því sem gerist í vinnunni. Í tilrauninni er skorað á leikarann að vinna án leikstjórnar, leikmyndahönnuðar eða búningahönnuðar. Hópurinn valdi sér sem viðfangsefni Sólarferð eftir Guðmund Steinsson sem naut mikilla vinsælda á áttunda áratugnum. Þótti við hæfi að takast á við íslenskt verk en betra að ráðast í texta sem hafði farið í gegnum frumsýningu. Í þeirri oft hröðu vinnu sem leikarar leggja á sig við að tileinka sér hlutverk vaknar oft hjá þeim þörf fyrir að brjóta upp vanann og leita nýrra leiða og ferskra vinda. Síðar í vetur hyggst LR taka leikstjóra sína í svipað verkefni.
Menning Mest lesið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Fleiri fréttir Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Sjá meira